Gerðuberg

 

Dimmalimm verðlaunin 2009

01.02.2010

Dimmlimm verðlaunRagnheiður Gestsdóttir hlaut Dimmalimm – Íslensku myndskreytiverðlaunin 2009
sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Gerðubergi í dag.

Í dómnefndinni voru Kalman le Sage de Fontenay grafískur hönnuður, sem er fulltrúi Myndstefs, Aðalsteinn Ingólfsson, sem fulltrúi Gerðubergs og Bryndís Loftsdóttir, bóksali, sem er fulltrúi Eymundsson.
Bryndís Loftsdóttir sagði m.a. í rökstuðningi sínum:

“Það var langur vegur frá hugmynd að bók í þessu tilfelli. Fyrst dvaldi Ragnheiður lengi yfir lagavalinu. Þegar það lá fyrir hófst myndavinnan og ef fólk rýnir í myndirnar getur það bara ímyndað sér hvað hún hefur tekið langan tíma. Öll smáatriði eru klippt út í ótal gerðir af pappír sem hún safnar út um víðan völl og límir svo saman með nákvæmni skurðlæknis. Í miðjum klíðum við þessa bók var hætt að flytja inn límið sem hún notar helst - sem setti örlítið strik í reikninginn en það leystist að lokum farsællega.  Við þessa vinnu sækir
Ragnheiður ekki mikið í ritstjóra heldur mætti til útgefanda með fullunnið verk - 48 stórar opnumyndir þaktar smáatriðum. 

Þetta vilja börnin sjáRagnheiður gerir miklar kröfur til útlits bóka sinna og fylgir þeim í gegnum alla vinnslu. Þær Anna Cynthia Leplar, sem sá um umbrot bókarinnar, hafa unnið ótal bækur í gegnum tíðina og sitja gjarna saman yfir tölvunni þegar verið er að flytja texta eða mynd um millimetra upp eða niður og telja ekki klukkustundirnar í þeirri vinnu.

Þess má geta að dómnefnd var sammála um að hér væri á ferðinni einstaklega vel unnar myndskreytingar þar sem nostrað hefði verið við hvert smáatriði, kápumynd og prentverkið í heild sinni væri höfundi, útgáfu og prentsmiðju til sóma auk þess sem geisladiskur með lögum bókarinnar yki enn verðgildi hennar með skemmtilegum hætti.

Fyrir hönd dómnefndar vil ég færa Ragnheiði Gestsdóttur Dimmalimm verðlaunin í ár, -auk viðurkenningarinnar og blóma fylgir verðlaunafé upp á 450.000 kr.
Bókin er gefin út hjá Forlaginu.


Þetta er í áttunda sinn sem verðlaunin eru veitt en áður hafa eftirfarandi listamenn veitt verðlaununum viðtöku: Áslaug Jónsdóttir, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Brian Pilkington, Björk Bjarkadóttir, Sigrún Eldjárn og Kristín Ragna Gunnarsdóttir.

Á sýningunni Þetta vilja börnin sjá! má sjá allar þær bækur sem kepptu til verðlaunanna að þessu sinni. Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna sem hægt er að kynna sér nánar á www.gerduberg.is.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook