Syngjum og kveðum
17.03.2010
Menningarmiðstöðin Gerðuberg í Gallerý fiskur café.
Sunnudaginn 14. mars 2010, kl. 14.00 – 16.00 verða kveðnar stemmur, sungið og hlýtt á söngva, lög, víkivaka og dansa frá norður Atlanshafi, má þar nefna Bretlandseyjum, Irlandi, Hjaltlandseyjum, Íslandi, Vestmannaeyjum, Færeyjum en einnig verða lög frá Búlgaríu á dagsskrá.
Þeir sem koma fram eru m.a. Skarphéðinn Haraldsson, Wilma Young fiðluleikari frá Hjaltlandseyjum, Chris Foster söngvari og gítarleikari frá Englandi, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu, Pétur Eggerz segir sögu og
Færeyingar koma og leiða alla í færeyskan dans.
Aðgangur ókeypis
Umsjón: Bára Grímsdóttir og Chris Foster