Gerðuberg

 

Um Gerðuberg

Norðurinngangur GerðubergsGerðuberg var opnað 4. mars 1983 og er alhliða menningarmiðstöð rekin af Reykjavíkurborg. Boðið er upp á fjölbreytta menningardagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Leiðarljós Gerðubergs er að eflast sem alhliða menningarmiðstöð með fjölbreyttri og metnaðarfullri menningarstarfsemi og vera griðastaður góðra hugmynda og nýsköpunar. Gerðuberg hefur verið einn vinsælasti funda- og ráðstefnustaður borgarinnar.

Rík áhersla er lögð á gott aðgengi borgarbúa á öllum aldri. Boðið er upp á fjölbreytta menningardagskrá sem kynnt er í starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs ár hvert. Er hún birt á heimasíðu Gerðubergs og á prentuðum viðburðakortum sem gefin eru út tvisvar á ári.

Formlegar menningarstofnanir Reykjavíkurborgar eru Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Menningarmiðstöðin Gerðuberg, Minjasafn Reykjavíkur, Höfuðborgarstofa, sem einnig sinnir ferðamálum, og auk þeirra ber að nefna Viðey. Smellið hér til að fá nánari upplýsingar um starfsemi Menningar og ferðamálasviðs...

Menningarmiðstöðin Gerðuberg heyrir undir Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar.Gluggaveggur við norðurinngang Gerðubergs
Framkvæmdastjóri er Guðrún Dís Jónatansdóttir.
Skrifstofa og listadeild Gerðubergs er opin virka daga kl. 8-16
netfang: gerduberg@reykjavik.is, sími: 575 7700
Sýningar eru opnar virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16
ATH: Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lokuð um helgar í júní til ágúst.

Gerðubergssafn, eitt af sjö útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Safnstjóri er Sólveig Arngrímsdóttir.
Sjá upplýsingar um opnunartíma Gerðubergssafn: www.borgarbokasafn.is
Netfang: gerduberg@borgarbokasafn.is  Sími: 557 9122

Félagsstarf Gerðubergs er rekið af Þjónustumiðstöð Breiðholts sem heyrir undir Velferðarsvið borgarinnar. Deildarstjóri er Guðrún Jónsdóttir.
Félagsstarfið er opið virka daga kl. 9 - 16.30
Netfang: gudrun.jonsd@reykjavik.is, sími: 575 7720
Veffang: www.breidholt.is

Gallerý fiskur býður veitingar fyrir gesti og gangandi og er með veisluþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Framkvæmdastjóri er Ásmundur Karlsson, s. 863 9217
Opið er virka daga kl. 10-16 og um helgar kl. 13-16
Netfang: galleryfiskur@galleryfiskur.is, sími: 575 7710
Veffang: www.galleryfiskur.is

 
Prenta Prenta      Senda í tölvupósti Senda
 



Starfsáætlanir Menningar- og ferðamálasviðs