Leiðarljós, hlutverk og markmið
Leiðarljós
Gerðuberg eflist sem alhliða menningarmiðstöð með fjölbreyttri og metnaðarfullri menningarstarfsemi og sé griðastaður góðra hugmynda og nýsköpunar.
Hlutverk
Menningarmiðstöðin Gerðuberg er alhliða menningarmiðstöð sem leggur áherslu á gott aðgengi borgarbúa á öllum aldri að viðburðum og fræðslu á sviði menningar og lista.
Meginmarkmið
Að starfsemi Gerðubergs einkennist af fagmennsku og metnaði.
Að sinna frjóu samstarfi við einstaklinga, listamenn, félög eða samtök, innlendar og erlendar menningarstofnanir, fræðslu - og skólayfirvöld.
Að mæta þörfum ólíkra hópa þjóðfélagsins óháð aldri og uppruna.
Að leggja rækt við listrænt og skapandi starf með og fyrir börn og vekja athygli á árangri þeirrar starfsemi, m.a. með auknu sýningarhaldi á myndverkasafni úr listsmiðjunum Gagn og gaman.
Að sinna samstarfsverkefnum á sviði fjölmenningar sem auka víðsýni og skilning í litríku menningarsamfélagi borgarinnar.
Að hlúa að og miðla alþýðumenningu með sýningarhaldi og viðburðum í samstarfi við einstaklinga og félög.
Að leggja áherslu á fræðslu og leiðsögn í tengslum við viðburði og sýningar.
Að standa að útgáfu á þingum rithöfunda, myndlistarmanna og annarra listamanna sem haldin eru að jafnaði ár hvert og eru heimildir um líf og listferil viðkomandi samtímalistamanna.