Gerðuberg

 

Staðsetning og skipulag

Gluggaveggur við norðurinngang GerðubergsMenningarmiðstöðin Gerðuberg stendur við Gerðuberg 3-5, 111 Reykjavík, á móts við Breiðholtslaug og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Bílastæði eru bæði að ofanverðu og neðanverðu við húsið. Þeir sem vilja koma með almenningsvögnum geta tekið leið 3, 4, 12 eða 17.

Upplýsingar um sýningaraðstöðu hússins:
Í húsinu eru þrjú megin sýningarrými; í Boganum, í anddyri á neðri hæð og á gangi og í setustofu á efri hæð. Sjá teikningu...

Sýningarsvæðin eru vöktuð með öryggismyndavélum. Brunavarnarkerfi er í húsinu. Hitastig hússins er um 20°C og er stjórnað með loftræstikerfi og handvirkri stillingu ofna. Í sýningarrýmum eru notaðir halógen-ljóskastarar (30W) auk loftlýsingar með 100w/240V.

Veggpláss í sýningarrýmum:
Setustofa (án glugga) 16,59 m
Setustofa (með gluggum) 24,62 m
Gangur 29,01 m
Neðri hæð 43,6 m

Allt húsið (án glugga) 89,2 m
Allt húsið (með gluggum) 97,2 m

 

 
Prenta Prenta      Senda í tölvupósti Senda