Um dagskrána
Í gegnum árin hafa skapast ýmsar hefðir í dagskrá Gerðubergs auk þess sem alltaf hefur verið gefið rými fyrir spennandi og frumlega viðburði sem jafnt listamenn sem starfsfólk Gerðubergs hefur átt frumkvæði að. Samstarfsaðilar Gerðubergs í gegnum árin skipta hundruðum og alltaf bætast nýir í hópinn.
Ýmsir fastir liðir í starfseminni hafa skipað sér verðugan sess í menningarlífi borgarinnar og má þar nefna sjónþingin, ritþingin og ljóðatónleikana. Eins og gengur hafa ýmsir viðburðir rúllað í nokkur ár og síðan runnið sitt skeið til enda til að gefa rými fyrir eitthvað nýtt. Ber þar fyrst að nefna listsmiðjurnar Gagn og gaman sem starfræktar voru í 18 ár en á þeim tíma jókst framboð á skapandi starfi fyrir börn yfir sumartímann svo um munaði. Það sem þó eftir lifir til að halda minningu þess verðuga starfs á lofti er myndverkasafn Gerðubergs. Í því er að finna um eitt þúsund verk sem unnin voru af börnunum í listsmiðjunum.
Af öðrum liðum má nefna dagskrána Viltu lesa fyrir mig? þar sem rithöfundar lásu fyrir börnin úr nýútkomnum bókum sínum í tengslum við opnun sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá! Sýningaröðin Þetta vil ég sjá! vakti líka athygli fyrir óvenjulega nálgun en þar voru þjóðþekktir einstaklingar fengnir til að setja saman myndlistarsýningu á eigin forsendum og varð útkoman oftar en ekki forvitnileg.
Auk hinna föstu liða í dagskrá Gerðubergs hafa innlendir og erlendir listamenn jafnan átt greiðan aðgang að Gerðubergi sem hefur tekið inn í dagskrá sína myndlistarsýningar, tónleika, leiksýningar og námskeið af ýmsum toga.
Árið 2003 var stofnað listráð sem ætlað er að stuðla enn frekar að metnaðarfullri listrænni dagskrá hússins. Í listráðinu sitja Anna Líndal myndlistarkona, Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu og Sjón rithöfundur.