Gerðuberg

 

Sjón-, Rit- og Tónþing


Þingin

 

Sjónþing

Sjónþing hófust 1996 en þeim er ætlað að gefa innsýn í íslenska samtímalist og gefa fólki kost á að kynnast viðhorfum, áhrifavöldum og lífshlaupi einstakra listamanna í máli og myndum. Skipulagi sjónþinga er þannig háttað að listamaður situr fyrir svörum um líf sitt og list. Umræðum er stýrt af stjórnanda en auk hans eru tveir spyrlar. Áheyrendur er hvattir til að koma með innlegg í umræðurnar. Sjónþingin hafa frá fyrstu tíð verið gefin út í prentuðu formi og eru seld á skrifstofu Gerðubergs. Sjónþing frá 2003 verða gefin út á rafrænu formi hér á heimasíðunni en verða ekki gefin út á prenti. Smellið á nafn viðkomandi listamanns til að sjá rafræna útgáfu. Sjónþing Koggu er komið út og þingin frá 2004-2008 eru væntanleg.

Listamenn Sjónþinga:
’96  Bragi Ásgeirsson, myndlistarmaður - Uppselt
’96  Ragnheiður Jónsdóttir, myndlistarmaður
’96  Hafsteinn Austmann, myndlistarmaður
’96  Birgir Andrésson, myndlistarmaður
’96  Brynhildur Þorgeirsdóttir, myndlistarmaður
’96  Helgi Þorgils Friðjónsson, myndlistarmaður
’96  Guðrún Kristjánsdóttir, myndlistarmaður
’97  Finnbogi Pétursson, myndlistarmaður
’97  Magnús Tómasson, myndlistarmaður
’98  Hulda Hákon, myndlistarmaður
’98  Kristinn G. Harðarson, myndlistarmaður
’98  Hannes Lárusson, myndlistarmaður
’99  Þorvaldur Þorsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur
’99  Eiríkur Smith, myndlistarmaður
’00  Anna Líndal, myndlistarmaður
’01  Þórunn E. Sveinsdóttir, búningahönnuður
’02  Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt
’03  Kogga, keramiker - rafræn útgáfa
’04  Reynir Vilhjálmsson, landslagsarkitekt - rafræn útgáfa
'05  Þórdís Zoëga, hönnuður - rafræn útgáfa
'06  Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður - Væntanlegt
'07  Rúrí, myndlistarmaður - Væntanlegt
'08  Steina Vasulka, vídeólistakona - Væntanlegt

Ritþing

Ritþing hófust 1999 en þeim er líkt og Sjónþingum ætlað að veita persónulega innsýn í feril íslenskra rithöfunda. Ritþingin hafa frá fyrstu tíð verið gefin út í prentuðu formi og eru seld á skrifstofu Gerðubergs. Ritþing frá 2004 verða gefin út á rafrænu formi hér á heimasíðunni en verða ekki gefin út á prenti. Smellið á nafn viðkomandi listamanns til að sjá rafræna útgáfu. Þingin frá 2008-2010 eru væntanleg.

Eftirfarandi rithöfundar hafa setið fyrir svörum:
’99  Guðbergur Bergsson
’99  Árni Ibsen
’99  Guðrún Helgadóttir - Uppselt
’00  Þórarinn Eldjárn - Uppselt
’00  Einar Már Guðmundsson
’01  Sigurður Pálsson
’01  Steinunn Sigurðardóttir
’02  Ólafur Haukur Símonarsson
’02  Matthías Johannesen 
’04  Arnaldur Indriðason - rafræn útgáfa
'05  Vilborg Dagbjartsdóttir - rafræn útgáfa
'06  Thor Vilhjálmsson - rafræn útgáfa
'07  Ingibjörg Haraldsdóttir - rafræn útgáfa
'07  Sigrún Eldjárn - rafræn útgáfa
'08  Einar Kárason - Væntanlegt
'09  Kristín Marja Baldursdóttir - Væntanlegt
'10  Pétur Gunnarsson - Væntanlegt
'11 Vigdís Grímsdóttir - Væntanlegt

'12 Hallgrímur Helgason - Væntanlegt

 

Tónþing

Fyrsta Tónþing Gerðubergs var haldið á Myrkum músíkdögum 16. febrúar 2002. Tónþingunum er ætlað að veita innsýn í lífshlaup og feril tónskálds með fjörugum umræðum auk þess sem flutt eru brot úr verkum listamannsins. Tónþingin eru líkt og Sjón- og Ritþingin gefin út.

Það var Atli Heimir Sveinsson sem reið á vaðið á fyrsta tónþingi Gerðubergs.
’02  Atli Heimir Sveinsson

 


 

2013

 



Rafræn útgáfa - Sjónþing og Ritþing