Gerðuberg

 

Ljóðatónleikar Gerðubergs


Ljóðatónleikar Gerðubergs voru fastir viðburðir í tónlistarlífi borgarbúa um 15 ára skeið. Á Ljóðatónleikunum hafa frá upphafi verið flutt alls um 950 sönglög eftir um 150 tónskáld, þar af eru tæplega fjögur hundruð íslensk einsöngslög.
Söngvarar sem komið hafa fram á tónleikunum eru um 40 og sungið hefur verið á 15 tungumálum.

Veglegar efnisskrár hafa verið gefnar út fyrir hverja tónleika, með íslenskum þýðingum ljóðanna eftir Reyni Axelsson. Efnisskrárnar eru til sölu á skrifstofu Gerðubergs.
Hluti þessara tónleika hefur komið út á geisladiskum, þar sem mikil vinna hefur verið lögð í söfnun, varðveislu og flutning íslenskra einsöngslaga. Jónas Ingimundarson píanóleikari hefur umsjón með útgáfunni og hefur fengið marga af okkar bestu söngvurum til liðs við sig. 

Flytjendur á Ljóðatónleikum Gerðubergs 1988-2007

Alina Dubik, mezzósópran
Anna Sigríður Helgadóttir, mezzósópran
Anna Júlíana Sveinsdóttir, mezzósópran
Arnar Jónsson, leiklestur
Auður Gunnarsdóttir
Bergþór Pálsson, baríton
Björk Jónsdóttir, sópran
Björn Jónsson, tenór
Elsa Waage, kontraalt
Erna Guðmundsdóttir, sópran
Eyjólfur Eyjólfsson
Finnur Bjarnason, baríton
Garðar Cortes, tenór
Gerrit Schuil, píanóleikari
Guðbjörn Guðbjörnsson, tenór
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Gunnar Guðbjörnsson, tenór
Hanna Dóra Sturludóttir, sópran
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, mezzósópran
Hulda Björk Garðarsdóttir
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran
Ingibjörg Marteinsdóttir, sópran
Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran
John Speight, baríton
Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór
Jónas Ingimundarson, píanóleikari
Judith Gans, sópran
Kolbeinn J. Ketilsson, tenór
Kristinn Örn Kristinsson, píanóleikari
Kristinn Sigmundsson, baríton
Loftur Erlingsson, baríton
Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópran
Michael Jón Clarke, baríton
Ólafur Kjartan Sigurðarson, baríton
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran
Rannveig Fríða Bragadóttir, mezzósópran
Sesselja Kristjánsdóttir, mezzósópran
Signý Sæmundsdóttir, sópran
Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzósópran
Sigríður Gröndal, sópran
Sigríður Jónsdóttir, mezzósópran
Sigríður Ella Magnúsdóttir, mezzósópran
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran
Sigurður Ingvi Snorrason, klarínettuleikari
Snorri Wium, tenór
Sólrún Bragadóttir, sópran
Sverrir Guðjónsson, kontratenór
Unnur A. Wilhelmsen, sópran
Viðar Gunnarsson, bassi
Þóra Einarsdóttir, sópran
Þórunn Guðmundsdóttir, sópran

 

2009