Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum og íslensku verðlaunin sem nefnd eru eftir Dimmalimm.
Nú á allra síðustu árum hefur athygli manna í auknu mæli beinst að gildi myndskreytinga í barnabókum. Góð frásögn kristallast í nánu samspili texta og myndar. Árið 2002 var ákveðið að halda sýningu á myndskreytingum úr nýútkomnum barnabókum og veita síðan verðlaun fyrir bestu myndskreytinguna það árið. Verðlaunin hlutu heitið Dimmalimm og ákveðið var að veita þau árlega. Í dómnefnd árin 2002 og 2003 sátu Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Aðalbjörg Þórðardóttir grafískur hönnuður og Kalman le Sage de Fontenay auglýsingateiknari skipuð af Gerðubergi, Myndstefi og Félagi íslenskra teiknara. Að verðlaununum standa auk þess Penninn (Eymundsson) og Félag íslenskra bókaútgefenda. Menntamálaráðuneytið veitti styrk til verðlaunanna 2002 og 2003.
Síðustu árin hefur sýningin jafnan flakkað um landið. Sýningin á myndskreytingum ársins 2010 fer víða í ár.
Deiglan, Listagili Akureyri
12. – 30. mars 2011
Menningarmiðstöð Hornafjarðar
6. – 30. apríl 2011
Sláturhúsið Menningarhús Egilsstöðum
13. - 31. maí 2011
Sögusetrið Hvolsvelli
1. sept. - 16. október 2011
Safnahúsið á Húsavík
1. des. - 16. janúar 2012
Verðlaunahafar:
2010 Karl Jóhann Jónsson fyrir bókina Sófus og svínið
2009 Ragnheiður Gestsdóttir fyrir bókina Ef væri ég söngvari
2008 Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir bókina Örlög guðanna sem skrifuð er af Ingunni Ásdísardóttur
2007 Sigrún Eldjárn fyrir bókina Gælur, fælur og þvælur
2006 Björk Bjarkadóttir fyrir bókina Amma fer í sumarfrí
2005 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Gott kvöld
2004 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Nei, sagði litla skrímslið
2003 Brian Pilkington fyrir bókina Mánasteinar í vasanum
2002 Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir bókina Engill í Vesturbænum sem skrifuð er af Kristínu Steinsdóttur
2011