Gerðuberg

 

Stefnumót við safnara


Sýningin Stefnumót við safnara var haldin í fyrsta sinn í Gerðubergi árið 2004. Þar gat að líta brot af því besta úr söfnum 11 einstaklinga, s.s. hatta, hálsbindi, skó, vettlinga, útvarpstæki, spiladósir, Hawaiiskyrtur, leikaramyndir, spil, styttur, póstkort með vísum, gleraugu og veggspjöld með Marilyn Monroe.

Ólafur Engilbertsson sagnfræðingur og leikmyndahönnuður sá um sýningarstjórn ásamt verkefnisstjórum Gerðubergs.

Auk sýningarinnar var haldinn Safnaramarkaður þar sem safnarar gátu skipst á munum auk þess sem gestum og gangandi bauðst að skoða, skipta og kaupa safngripi. Einnig var áhugafólki boðið í bíó þar sem sýndar voru tvær heimildarmyndir eftir Kára G. Schram úr flokknum 21 óskráð. Myndin “Grúskari af guðs náð” um Jónas Halldórsson í Antikbúðinni var frumsýnd og einnig var sýnd mynd um Valda koppasala.

Fjöldi ábendinga um spennandi söfn hafa borist Gerðubergi og því ljóst að söfnunarástríða fólks er vissulega efni í margar sýningar. Gerðuberg hefur því ákveðið að taka fjölda áskorana um að gera Safnarasýninguna að föstum lið í dagskrá sinni.

Sjá Safnaralista Gerðubergs...

Viltu lesa um sýninguna 2008?

Viltu lesa um sýninguna 2005?

Viltu lesa um sýninguna 2004?

2009

 



Stefnumót við safnara I


Stefnumót við safnara II


Stefnumót við safnara III