Gagn og gaman myndverkasafn
Það er gaman að kafa djúpt og dýpra og það er gaman að hoppa hátt og hærra, skoða allt.
Við gerum grein fyrir skynjunum okkar í ljóði, leik, hljóði og myndum, við skoðum, greinum, skynjum.
Við erum Gagn og gaman!
Listsmiðjan Gagn og gaman var fastur liður í starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs í 18 ár. Aðalmarkmið námskeiðanna var að örva sköpunarhæfni barna og hvetja þau til tjáningar. Þar unnu börn á aldrinum 6 -13 ára undir leiðsögn starfandi listamanna eins og rithöfunda, leikara, myndlistarmanna, tónlistarmanna, skálda og dansara að skapandi verkefnum. Námskeiðin voru ýmist 3ja vikna löng, þar sem unnið var með margar listgreinar, eða vikunámskeið þar sem höfuðáhersla var lögð á eina listgrein. Öllum námskeiðum lauk með sýningu á því sem börnin höfðu unnið.
Gerðuberg hefur í gegnum árin markvisst safnað myndverkum eftir börn og eru í safninu um 1000 verk. Skráning og flokkun safnsins er á lokastigi. Ekki er vitað til þess að sambærilegt safn sé til á landinu og óvíða á Norðurlöndum. Val á myndverkum í safnið var í höndum starfandi myndlistarmanna og stjórnaðist af uppbyggingu, formi, litanotkun og því hvergi slegið af listrænum kröfum.
Safnið er því sjóður fyrir fræðimenn, uppeldisfræðinga, list- og sagnfræðinga, fagurkera og unnendur lista og menningar að sækja í nú og um ókomna tíð.
Um þessar mundir er hægt að skoða myndir úr safneigninni á skrifstofu Umboðsmanns barna við Laugaveg 13, í Miðstöð mæðraverndar og Miðstöð heilsuverndar barna í Mjóddinni í Reykjavík.
Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safninu til lengri eða skemmri tíma. Aðstoðað er við val á myndverkum, stærð sýningar og þema. Nánari upplýsingar eru veittar í listadeild Gerðubergs s. 575 7700.
Blómin voru mismunandi að lit, angan, stærð og lögun og leiddi það hugann að persónuleikum fólks. Okkur fannst að gott væri að líkja þeim flóknu fyrirbærum við blóm. Sumir eru kaktusar, bíta ögn frá sér en búa svo yfir því fagra blómi sem kaktusblómið er og bræðir öll hjörtu. Aðrir eru stórar rauðar rósir sem sífellt vilja kyssa allan heiminn. Svona gátum við endalaust fundið líkingar og gerðum svo útfrá þessu sjálfsmyndir.
Úr dagbók barna í Gagn og gaman
2009