Salaleiga
Í Gerðubergi er fjölbreytt og góð aðstaða, ráðstefnusalir og fundaherbergi af ýmsum stærðum og gerðum. Rúmar A-salurinn allt að 140 manns og B-salur allt að 70 manns. Í G-sal er fundaaðstaða fyrir 16 manns, 12 í Norðurstofu og 8 í Suðurstofu. F-salur, sem einnig er kallaður speglasalur, hentar vel fyrir dans, leiklistar- eða jógakennslu, hugleiðslu og fleira í þeim dúr. Hann er 69 m2.
Allur almennur tækjabúnaður er til staðar, s.s. tölva, skjávarpi og hljóðkerfi og í húsinu er þráðlaust net. Þar er einnig ljósritunarþjónusta fyrir viðskiptavini.

Gerðuberg leitast við að sinna viðskiptavinum sínum og gestum sem best. Vanti þig sal fyrir fundi, brúðkaup, ráðstefnu, afmæli, námskeið, kennslu, fyrirlestur, erfidrykkju eða kynningar, hafðu þá samband við Guðlaugu á skrifstofu Gerðubergs í síma 575 7700, netfang gudlaug.sigurbjornsdottir@reykjavik.is .
Skrifstofan er opin virka daga kl. 8.00-16.00.