Gerðuberg

 

Ljósmyndasýning í kaffihúsinu | 02.09.2010

Ísland í ramma er yfirskrift sýningar Gísla Hjálmars Svendsen. Hér sýnir Gísli ljósmyndir sem hann hefur tekið á ferðum sínum um Ísland síðustu tvö ár.

Viðbrögð - sýning Jóns Laxdals Halldórssonar | 02.09.2010

Verið velkomin á opnun sýningarinnar laugardaginn 4. september kl. 14. Á sýningunni gefur að líta myndaröð sem unnin er úr gömlum pappír. Listamaðurinn raðar saman formum, textum og myndum í heillandi myndverk, eins konar klippimyndir sem að þessu sinni eru unnar úr vikublaðinu Fálkanum.

Viðburðir haustsins í Gerðubergi! | 02.09.2010

Haustdagskrá Gerðubergs hefur nú verið birt á heimasíðunni, www.gerduberg.is undir liðnum Viðburðadagatal. Í boði verða margir spennandi viðburðir fyrir alla aldurshópa.

Handverkskaffi - Að fanga liti jurtanna | 31.08.2010

Fyrsta handverkskaffi haustsins í Gerðubergi verður miðvikudagskvöldið 1. september kl. 20. Þetta kvöld gefst gestum kostur á að kynnast hvernig lita má garn eða klæði með jurtum úr íslenskri náttúru.

Hugarflug - fyrsta sýningaropnun haustsins! | 30.08.2010

Verið velkomin á opnun sýningar Aðalbjargar Þórðardóttur eða Öbbu eins hún er oftast kölluð, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 17. Yfir verkum hennar er heillandi og dulúðlegur blær. Viðfangsefni Öbbu eru svanir en þeir eru fyrir margra hluta sakir heillandi viðfangsefni enda eru þeir mörgum heilagir og koma víða fyrir í sögnum og goðsögum.

Jazzsöngsmiðja Kristjönu Stefáns | 25.08.2010

Í jazzsöngsmiðjunni fer Kristjana Stefánsdóttir, söngkona, yfir helstu stílbrigði í sungnum jazzi s.s. „ballad“, „medium swing“, „uptempo swing“ og „latin“. Einnig verður farið í spuna og blús. Meðleikari og meðkennari verður Agnar Már Magnússon, píanóleikari. Kristjana og Agnar Már eru bæði starfandi kennarar við Tónlistarskóla FÍH og hafa í gegnum tíðina unnið mikið saman á tónlistarsviðinu.

Lokað vegna sumarleyfa starfsfólks | 01.07.2010

Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lokuð vegna sumarleyfa starfsfólks frá 1. júlí og opnar á ný 9. ágúst. Gestir eru hvattir til að kynna sér dagskrá haustsins en hún hefst með spennandi jazzsöngsmiðju og tónleikum Kristjönu Stefánsdóttur í 25. og 26. ágúst auk þess sem Aðalbjörg Þórðardóttir opnar sýningu sína Hugarflug fimmtudaginn 26. ágúst.

Þetta vilja börnin sjá! á ferð um landið | 01.07.2010

Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2009 hefur flakkað um landið og hefur þegar opnað í Menningarmiðstöð Hornafjarðar og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í haust fer sýningin til Hvolsvallar á Sögusetrið og þaðan í Safnahúsið á Húsavík.

Breiðholt í upphafi og augnablikinu | 21.06.2010

Nú standa yfir í Gerðubergi tvær spennandi sýningar á ljósmyndum úr Breiðholti. Annars vegar sýning á nýlegum myndum Friðgeirs Helgasonar og hins vegar gamlar ljósmyndir frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Leikhús möguleikanna! | 10.06.2010

Möguleikhúsið efnir nú, sextánda árið í röð, til leikhúsnámskeiðsins „Leikhús möguleikanna“. Haldið verður eitt námskeið fyrir börn á aldrinum 9–12 ára og stendur það í þrjár vikur. Námskeiðið fer að þessu sinni fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.

Gerðuberg hlýtur Vorvindaviðurkenningu IBBY | 18.05.2010

Á Vorvindahátíð IBBY á Íslandi (The International Board on Books for Young People) sem haldin var í Gunnarshúsi 16. maí s.l. voru veittar fjórar viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar árið 2010.

Breiðholt - í augnablikinu | 11.05.2010

Sunnudaginn 16. maí kl. 14.00 opnar Friðgeir Helgason ljósmyndasýninguna Í augnablikinu.

Grannmetislög | 17.05.2010

Sunnudaginn 16. maí kl. 14 verða tónleikar með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Caput hópnum. Þau munu leika lög eftir Hauk Tómasson og eru textarnir úr bók Þórarins Eldjárns, Grannmeti og átvextir.

Syngjum og kveðum - lög frá ýmsum þjóðlöndum | 06.05.2010

Eigum saman góða stund, syngjum og kveðum íslensk og erlend alþýðulög og hlýðum einnig á söngva frá ýmsum þjóðlöndum og sögur. Þeir sem koma fram að þessu sinni eru meðal annars Patthama Meghavibhata frá Tælandi, Kristín frá Víetnam, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu og Konstantín Shcherbak frá Rússlandi.

Allir hafa hæfileika | 06.05.2010

Fimmtudaginn 6. maí kl. 14 opnar sýningin Allir hafa hæfileika. Sýningin er samsýning 24 listamanna sem tilheyra listahópi Iðjubergs.

Lesið í skóginn - tálgað í tré | 03.05.2010

Miðvikudagskvöldið 5. maí kl. 20-22 er handverkskaffi í Gerðubergi. Þetta kvöld kynnir Ólafur Oddsson ferskar viðarnytjar og tálgutækni. Tálgun í ferskan við er frábrugðin annarri tálgun að því leyti að viðurinn er mjúkur og ilmandi.

Viltu koma og skoða Ástríðulist? | 29.04.2010

Sunnudaginn 2. maí kl. 14 verða sýningarstjórarnir Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir með leiðsögn um sýninguna Ástríðulist. Sköpunargleði, kraftur, gleði, frelsi og frumleg sýn á lífið og listina einkennir sýninguna sem er samsýning 29 listamanna.

Klassík í hádeginu - Aríur, ljóð og rússnesk sönglög | 29.04.2010

föstudaginn 30. apríl kl. 12:15 og sunnudaginn 2. maí kl. 13:15 Gissur Páll Gissurarson, tenór, Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzosópran og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari,

Heimsdagur barna | 28.04.2010

Verið velkomin á Heimsdag barna á Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og frístundamiðstöðinni Miðbergi laugardaginn 24. apríl 2010

Eyrbyggjudagskrá í Gerðubergi | 12.04.2010

Haukur Sigurðsson, fyrrum sögukennari, flytur eigin dagskrá úr Eyrbyggju miðvikudaginn 14. apríl kl. 20 og laugardaginn 17. apríl kl. 14. Áhersla er lögð á kærleik og kynngi sem sagan segir frá og sem leiða til átaka, baráttu um völd og ein eftirminnilegasta ástarsaga sem finna má í Íslendingasögu kemur við sögu.

Sungið og kveðið sunnudaginn 11. apríl kl. 14-16 | 08.04.2010

Syngjum og kveðum um vorið góða grænt og hlýtt, bjóðum sumarið velkomið með sól í hjarta og söng á vörum. Eigum saman góða stund í kaffihúsi Gerðubergs og kveðum stemmur, syngjum, og hlýðum á söngva og lög, um vorið, sumarið og sólina. Íslensk alþýðulög sungin og kveðin með blandi af erlendum þjóðlögum.

Langafi prakkari - sýning Möguleikhússins | 08.04.2010

laugardaginn 10. apríl kl. 14. verður sýnt leikritið Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns

Alive Olivia Clarke | 08.04.2010

Alice Olivia Clarke mósaíkhönnuður er gestur á handverkskaffi aprílmánaðar í Gerðubergi. Þetta kvöld mun hún opna sýningu á mósaíkverkum í kaffihúsinu, segja frá listamannsferli sínum og kynna mósaík fyrir gestum. Mósaík er mynd eða verk sett saman úr litlum mislitum brotum af flísum. Möguleikarnir í þessari tegund listsköpunar eru nær óþrjótandi en Alice er á meðal færustu listamanna á þessu sviði.

Vinir Káins | 06.04.2010

Afmælisfundur um kímniskáldið Káinn - Miðvikudaginn 7. apríl kl. 20.30 mun Kvæðamannafélagið Iðunn og Baggalútur standa að afmælisfundi um kímniskáldið Káinn.

Klassík í hádeginu - Tveggja alda tónlist | 24.03.2010

Föstudaginn 26. mars kl. 12:15 og sunnudaginn 28. mars kl. 13:15 Flytjendur: Natalia Benedetti, klarínettuleikar og Sebastiano Brusco, píanóleikari Efnisskrá: Einleiksverk og dúó eftir Schumann, Schubert, Brusco, Arbonelli-Piazzolla, og Poulenc

Landsýn - Sýning í Boganum | 24.03.2010

Dagbjört Matthíasdóttir og Magnús Hannibal Traustason opna sýningu á olíumálverkum í Boganum 25. mars kl. 16:30

Egill Ólafsson og Caput hópurinn á tónleikum í Gerðubergi | 17.03.2010

Sunnudaginn 21. mars kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi. Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt Caput hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Guðni Franzson tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast þessari fallegu sögu.

Ástríðulist | 19.03.2010

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Ástríðulist, laugardaginn 20. mars kl. 14! Ástríðulist er samsýning fjölmargra lærðra og leikinna listamanna sem eiga það sameiginlegt að nálgast listina af einlægni og ástríðu. Á sýningunni er lögð er áhersla á fjölbreytni, sköpunargleði, frelsi og frumlega sýn á lífið og listina. Mikil litadýrð og gleði einkennir ástríðulist en verkin á sýningunni mætti skilgreina sem alþýðulist (folk art), utangarðslist (outsiders art), bernska list (naive art) og samtímalist (contemporary art).

Syngjum og kveðum | 17.03.2010

Sunnudaginn 14. mars 2010, kl. 14.00 – 16.00 Kveðum stemmur, syngjum, og hlýðum á söngva, lög, víkivaka og dansa frá eyjum í norður Atlanshafi, má þar nefna Bretlandseyjum, Irlandi, Hjaltlandseyjum, Íslandi, Vestmannaeyjum, Færeyjum en einnig verða lög frá Búlgaríu á dagsskrá.

Úr grárri forneskju í glansandi bók | 10.03.2010

Laugardaginn 13. mars kl. 10:30 – 13:15 verður haldin 12. ráðstefnan um barna- og unglingabókmenntir í Gerðubergi og ber yfirskriftina Úr grárri forneskju í glansandi bók!