Gerðuberg

 

Um eldhúsáhöld eru áhöld

18.11.2009

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 17 opnar sýning Sigurðar Árnasonar og Þórarins Eldjárns á eldhúsáhöldum í Safnarahorni Gerðubergs. Á opnuninni flytur Valgeir Guðjónsson eigin lög við ljóð Þórarins Eldjárns.Eldhúsáhöld

Þeir Sigurður og Þórarinn hafa um langt skeið verið félagar og keppinautar í söfnun sinni á eldhúsáhöldum. Þeir hafa nú sameinað krafta sína og sýna áhöldin undir yfirskriftinni Um eldhúsáhöld eru áhöld. Sum áhöldin á sýningunni eru kunnugleg og til á flestum heimilum en önnur eru framandi og erfitt að ímynda sér notagildi þeirra. Skankaskaft, eggjaklippur, maíshefill og bananahylki eru meðal þess sem fyrir augu ber. Áhöldin eru annars vegar sýnd í lokuðum sýningarskápum og hins vegar hangandi í óróa yfir eldhúsborði sem prýðir sýninguna. Eldhúsáhöldum eru einnig gerð skil í texta á vegg. Dæmi um heiti sem þar koma fram eru; afskeri, alskeri, aðskeri, úrskeri, ískeri, fráskeri, viðskeri, hjáskeri og flagari, merjari, berjari, slítari, tætari, þeytari.

Í bókinni Eins og vax eftir Þórarinn Eldjárn frá árinu 2002 er smásagan Ómerkingurinn. Sagan fjallar um safnara sem safnar eldhúsáhöldum. Söguna samdi Þórarinn og færði vini sínum Sigurði að gjöf í tilefni stórafmælis. Í sögunni segir frá áráttu safnarans og sérstöku áhaldi sem nefnt er ómerkingurinn sem reynist þegar til kemur vera stórmerk brauðmylsnuskafa. Mylsnusköfuna er að finna á sýningunni.

Yfirbragð sýningarinnar er fágað og svolítið fyndið, enda húmorinn ekki langt undan þegar ónytsamleg eldhúsáhöld eru annars vegar. Sýningarstjóri er Þórunn Elísabet Sveinsdóttir myndlistamaður og búningahönnuður. Sólóhúsgögn leggja sýningunni til klassíska eldhússtóla og verslunin Fríða frænka lánar eldhúsborð. Gerðuberg kann þeim bestu þakkir fyrir.

Sýningin stendur til 28. mars 2010 og er opin virka daga kl. 11-17 og kl. 13-16 um helgar.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook