Tóney stendur fyrir fjölskyldudagskrá
11.11.2009
í Gerðubergi sunnudaginn 15. nóvember kl. 14.00 -15.00. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem nemendur úr Sæmundarskóla koma fram, dansarar frá Listdansskóla Íslands sýna kafla úr dansverki við tónlist Tchaikovskys úr Hnotubrjótnum og ungir hljóðfæraleikarar og tónskáld koma fram og leika frumsamin tónverk.
Þá koma Rússíbanarnir í heimsókn og taka nokkur lög.
Hljómsveitin hefur haft hægt um sig undanfarin misseri en rýfur nú þögnina meðan harmónikusnillingurinn Tatu Kantoma dvelur hér í nokkra daga. Rússíbanar eru að leggja upp í tónleikaferð um Austurland en leika nokkur númer á Tóney í Gerðubergi áður en flugið er tekið austur.
Sjá nánari upplýsingar um dagskrána...
Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar, miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir.
Sjá www.toney.is