Gerðuberg

 

Í gegnum tíðina

11.11.2009

Laugardaginn 14. nóvember kl. 14 opnar Sigurbjörg Sigurjónsdóttir sýninguna Í GEGNUM TÍÐINA í Boganum. Á sýningunni gefur að líta fjölbreytt verk frá löngum ferli. Postulínsmyndir og munir, vatnslitamyndir og pastel- og olía á striga eru meðal þess sem fyrir augu ber.

Sigurbjörg Sigurjónsdóttir er fædd í Reykjavík á kvennadaginn árið 1937. Hún hefur alla tíð verið listhneigð. Sigurbjörg hóf að sækja námskeið hjá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 1970 og stundaði þar kvöldnámskeið um 10 ára skeið. Hún starfaði einnig um árabil með hópi áhugafólks um myndlist sem kallaðist Myndlistarklúbbur Hvassaleitis. Um 1990 fór Sigurbjörg að kenna postulínsmálun, fyrst heima hjá sér en síðastliðin 7 ár í Félagsstarfinu í Gerðubergi.

Undanfarin ár hefur Sigurbjörg mest helgað sig málun á postulín auk vatnslitamálunnar. Að hennar sögn er það fjölbreytileikinn sem heillar hana við postulínsmálun, möguleikarnir eru óþrjótandi enda unnt að mála bæði á flísar til innrömmunar sem og á nytjahluti, svo sem diska, könnur og skálar.

Sýningin stendur til 10. janúar 2010 og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook