Kellíngabækur
11.12.2009
Sunnudaginn 22. nóvember verður efnt til kynningar á bókum eftir konur undir yfirskriftinni Kellíngabækur.
Fer kynningin fram kl. 13-17 á þremur stöðum í Gerðubergi; A-sal, B-sal og á bókasafninu.
Á fimmta tug kvenna kynna verk sín sem eru af ýmsum toga; skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur, barnabækur og fræðibækur.
Háskólanemar hafa umsjón með “Kellíngunni á kassanum” þar sem höfundar stíga á stokk og lesa upp úr glænýjum bókum.
Barnabókahöfundar lesa upp úr verkum sínum á bókasafninu og þar er jafnframt sýning á bókum þeirra kvenna sem hlotið hafa Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna síðustu árin.
Í anddyri verða seldar bækur á sérstöku tilboðsverði auk þess sem höfundar og forleggjarar kynna bækur sínar.
Í G-sal á neðri hæð verður útvarpað beint leikriti Jónínu Leósdóttur, Faraldur, og hefst það kl. 14.
Sjá upplýsingar um leikritið...
Kl. 14:30 leiðir Þórunn Elísabet Sveinsdóttir gesti um sýninguna Óreiða, sem sett var upp í tilefni af Ritþingi Kristínar Marju Baldursdóttur þann 31. okt s.l.
Sjá upplýsingar um sýninguna...
Ilmandi kaffi og girnilegar veitingar eru í boði hjá Gallerí fiski - veitingastofu Gerðubergs.
Það er Góugleði- og Fjöruverðlaunahópurinn sem stendur að þessari kvenlegu bókakynningu í samstarfi við Gerðuberg.