Möguleikhúsið sýnir Aðventu
12.01.2010
„Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“
Einleikur byggður á sögu Gunnars Gunnarssonar
Sagan byggir á frásögnum af frægum svaðilförum Benedikts Sigurjónssonar, Fjalla-Bensa, á Mývatnsöræfum.
Hér er á ferðinni klassísk saga um náungakærleika og fórnfýsi. Pétur Eggerz fer með hlutverk Fjalla-Bensa.
Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Alda Arnardóttir
Tónlist og hljóðmynd: Kristján Guðjónsson
Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir
Sýningar fara fram í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Sunnudaginn 29. nóvember kl. 16
Miðvikudaginn 9. desember kl. 20
Aðgangseyrir: Kr. 2.000.-
Tilboð til eldri borgara: Kr. 2.500 fyrir leiksýningu og girnilegt kaffihlaðborð að sýningu lokinni.
Tilboðshafar athugið að panta þarf miða með a.m.k. þriggja daga fyrirvara.
Miðasala fer fram í síma s. 562 2669, 897 1813 og á moguleikuhusid@moguleikuhusid.is
www.moguleikhusid.is