Gerðuberg

 

Ómótstæðileg „Klassík í hádeginu”

25.11.2009

Klassík í hádeginu - Barokksónötur

Föstudaginn  27. nóvember, kl. 12:15
Sunnudaginn 29. nóvember, kl. 13:15

Dagskráin er að þessu sinni helguð verkum Johanns Sebastian Bach og flutt af fiðluleikaranum Joaquin Páli Palomares og píanóleikaranum Nínu Margréti Grímsdóttur sem jafnframt er listrænn stjórnandi tónleikanna. Á efnisskránni eru þrjár sónötur fyrir fiðlu og píanó BWV 1014; 1015 og 1016. Flutningur á sónötum Bachs fyrir fiðlu og hljómborð er afar sjaldheyrður viðburður og því kærkominn tónlistarunnendum.

Aðgangur er ókeypis.

Joaquín Páll Palomares fiðluleikari útskrifaðist frá Listaháskólanum árið 2008 og stundar nú framhaldsnám í Berlín. Hann hefur þegar vakið athygli víða enda einn efnilegasti tónlistarmaðurinn af yngstu kynslóðinni. 

Nína Margrét Grímsdóttir hefur lokið doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York. Hún hefur komið fram víða um heim sem einleikari, með hljómsveitum og í kammertónlist. Nína Margrét hefur hljóðritað fjóra geisladiska sem allir hafa hlotið frábæra dóma. Hún starfar við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík.

Hópar sem vilja gera sér glaðan dag geta notað tækifærið og fengið leiðsögn um sýninguna Óreiðan söguheimur Karitasar úr skáldsögum Krístnar Marju Baldursdóttur eða Svanurinn minn syngur, Ljóð og líf skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur. Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og með því. Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.

Sjá nánar um tónleikaröðina og flytjendur...

Frekari upplýsingar veitir Margrét Valdimarsdóttir, 575 7702.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook