Gerðuberg

 

Út í kött! - Sýning á laugardag kl. 14

25.11.2009

Út í kött!Út í kött!
Lýðveldisleikhúsið í samstarfi við Gerðuberg
Laugardaginn 28. nóvember kl. 14

 

Lýðveldisleikhúsið frumsýndi nýtt íslenskt leikhúsverk fyrir börn þann 26. maí s.l. í Gerðubergi. Þetta er dans- og söngleikur sem ber nafnið Út í kött! og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu- og ævintýraheima. Þessi ævintýraleikur er fyrir börn frá fjögurra ára aldri og fullorðnir hafa líka gaman af þessu fjöruga verki. 


 
Út í kött!Sagan segir frá Erpi (12 ára) sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía (11 ára) er hress og hraðlygin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta sig við þennan gest sinn, enda snýr hún heimi hans, þar sem hetjur teiknimynda og tölvuleikja eru karlmenn, á hvolf. Með fjörugu ímyndunarafli sínu nær hún að sýna honum að tilveran þarf ekki að vera niðurnjörvuð í fyrirfram ákveðin hólf og kassa. Sögur Helgu Soffíu eru þrjú Grimms-ævintýri byggð á útgáfum Roalds Dahl og fléttast þau inn í leikverkið með tónlist, dansi og söng. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð. Í leikhópnum eru leikari, dansari og söngvari ásamt tveimur börnum sem leika þau Erp og Helgu Soffíu, en aðrir þátttakendur munu bregða sér í hin ýmsu hlutverk ævintýranna.
 
Í ævintýraleiknum Út í kött! er staðalmyndunum gefið langt nef og hláturinn notaður til að opna augu áhorfenda fyrir því að heimurinn er ekki eins svart/hvítur og hann sýnist. Það er því mikilvægt, í allri þeirri fjölbreyttu flóru skemmtana sem standa börnum til boða, að þau geti einnig séð sýningu sem vekur þau til umhugsunar um viðtekin gildi. Á Íslandi er félagslegt jafnrétti langt á veg komið en á sama tíma eru skilaboðin sem börnin okkar fá úr umhverfinu og úr fjölmiðlum vægast sagt tvíræð. Stelpur eiga að vera sætar, undirgefnar og óvirkar en strákarnir eiga að vera ofurvirkar hetjur. Í þessu verki er staðalmyndum kynjanna hins vegar kollvarpað og viðteknum gildum ögrað.
 
Markmiðið með sýningunni er að vekja börn og fullorðna til umhugsunar um birtingarmyndir staðalmynda í umhverfi barnanna. Mikilvægi skapandi og gagnrýninnar hugsunar er seint ofmetið og því brýnt að börnin fái tæki og tól í hendurnar til að takast á við flóðbylgju skilaboða úr umhverfinu. Sýningin er farandsýning og með henni fylgir kennsluefni sem gefur kennurum tækifæri til frekari úrvinnslu á grundvelli leiksýningarinnar. Sýningin gæti m.a. nýst í kennslu í íslensku, lífsleikni, leiklist og tónlist. Einnig er tilvalið fyrir foreldrafélög að nýta sér þetta tilboð.
 
Flytjendur: Kolbrún Anna Björnsdóttir, Guðmundur Elías Knudsen, Ragnheiður Árnadóttir, Fannar Guðni Guðmundsson og Sóley Anna Benónýsdóttir
Leikstjóri og danshöfundur: Kolbrún Anna Björnsdóttir
Búningar: Sigríður Ásta Árnadóttir
Leikmynd: Kristrún Eyjólfsdóttir
Tónlist: Benóný Ægisson
Kvæði: Roald Dahl
Handrit og þýðingar á kvæðum: Benóný Ægisson
Hljóðfæraleikur: Sindri Már Sigfússon, Leifur Gunnarsson, Steingrímur Guðmundsson og Benóný Ægisson
Gerð kennsluefnis: Kolbrún Anna Björnsdóttir og Ragnheiður Gestsdóttir
Lengd: Tæplega 60 mínútur
Verð: 1500 kr á almennar sýningar en allt að helmingsafsláttur ef keyptar eru heilar sýningar.
 
Nánari upplýsingar á vefsetri Lýðveldisleikhússins www.this.is/great
 
 
Benóný Ægisson
Tel. +354 551 4612 / 897 8694
http://simnet.is/benaegis
http://this.is/great

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook