Jólakonfektgerð á handverkskaffi
30.11.2009
Miðvikudagskvöldið 2. desember kl. 20 er handverkskaffi í Gerðubergi. Þetta kvöld verður hugað að jólakonfektgerð sem í hugum margra er órjúfanlegur hluti jólaundirbúningsins. Guðrún Sigríður, eða Sirrý býr til nokkrar gerðir jólakonfekts fyrir gesti. Sirrý leggur áherslu á skemmtilegar og einfaldar uppskriftir sem henta allri fjölskyldunni. Gestir fá að smakka góðgætið og taka nokkrar uppskriftir með sér heim.
Guðrún Sigríður Ágústsdóttir, eða Sirrý er matreiðslumaður að mennt en starfar sem sölumaður. Sirrý hefur um nokkura ára skeið leiðbeint börnum á Barnaspítala Hringsins við gerð jólakonfekts.
Handverkskaffið er haldið fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20-22, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Markmiðið með handverks-kaffinu í Gerðubergi er að bjóða upp á notalega kvöldstund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og unnið að handavinnu. Boðið er upp á stuttar áhugaverðar kynningar og jafnvel sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins.