Gerðuberg

 

Elísabet kveður Gerðuberg

04.12.2009

Elísabet Bjarklind ÞórisdóttirElísabet Bjarklind Þórisdóttir mun um áramót láta af störfum sem framkvæmdastjóri Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs í Reykjavík. Elísabet hefur starfað hjá Reykjavíkurborg í liðlega 30 ár. Þar af hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri í Gerðubergi frá opnun þess 4. mars 1983. Elísabet hefur í gegnum kraftmikla starfsemi Gerðubergs innleitt fjölmargar markverðar nýjungar í menningar- og listastarfi í Reykjavík auk þess sem hún hefur gegnt ýmsum öðrum trúnaðarstörfum, en hún var m.a. fyrsti verkefnisstjóri Menningarnætur í miðborginni og gegndi störfum formanns stjórnar í 4 ár. Elísabet hyggur á nám áður en hún snýr aftur til starfa þar sem kraftar hennar munu nýtast vel í öðrum menningartengdum verkefnum hjá Reykjavíkurborg.
 
Guðrún Dís Jónatansdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf framkvæmdastjóra frá 1. desember. Hún er bókmenntafræðingur og hefur starfað sem verkefnisstjóri í Gerðubergi frá 2004 og staðgengill framkvæmdastjóra frá 2007 en gegndi áður starfi upplýsinga- og verkefnafulltrúa í Norræna húsinu.
 
Starfsfólks Gerðubergs og stjórnendur á Menningar- og ferðamálasviði þakka Elísabetu gott samstarf; dýrmætt framlag til menningarmála í borginni um leið og henni er óskað alls hins besta við þessi kaflaskil í störfum hennar á vettvangi Reykjavíkurborgar.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook