Óreiðan - Síðasta sýningarhelgi!
12.01.2010
Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýninguna Óreiðan - söguheimur Karitasar sem byggð er á skáldsögum Kristínar Marju Baldursdóttur um listakonuna Karitas. Sýningin var opnuð 31. október s.l. í tengslum við Ritþing Kristínar Marju. Sýningarstjórn var í höndum Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur.
Þórunn Elísbet myndgerir sögusvið og tilfinningar sem vakna með lesendum bóka Kristínar Marju um Karitas (Karitas án titils og Óreiða á striga). Þetta gerir hún með því að stilla upp hlutum, litum og tilvitnunum. Þórunn Elísabet hafði sjálf sterka tengingu við bækurnar áður en hún tókst á við verkið, enda var hún í sveit í Öræfum sem barn.
Um sýninguna segir Þórunn Elísabet:
„Það var ekki erfitt að ferðast og láta berast langt, langt inn í heim Karitasar. Sagan dró mig svo langt að ég varð líka Karitas; var og horfði, lifði og þorði. Óreiðan er bæði lamandi og hvetjandi, út frá því geng ég.“
Sjá nánari upplýsingar um sýninguna...
Sjá nánari upplýsingar um Ritþing Kristínar Marju...
Sýningin verður opin laugardag og sunnudag, 2. og 3. janúar frá kl. 13-16.