Handverkskaffi - Húfa á viku í heilt ár!
15.01.2010
Fyrsta handverkskaffið í Gerðubergi á nýju ári verður miðvikudagskvöldið 13. janúar kl. 20. Edda Lilja Guðmundsdóttir setti sér það markið að hekla eða prjóna eina húfu á viku allt árið 2009. Skilyrði var að engar tvær húfur væru eins og að þær væru allar gerðar úr garni sem hún átti þegar til í fórum sínum. Eddu tókst markmið sitt fyrir síðasta ár og hefur að auki sett sér metnaðarfullt markmið fyrir árið 2010. Hún segir frá húfunum 52, sýnir nokkrar þeirra og ljóstrar upp vikulegu verkefni sínu þetta árið.
Edda Lilja er textílkennari að mennt. Hún hefur nú lagt kennsluna á hilluna til að geta sinnt í fullu starfi hugðarefnum sínum; Frjálsu hekli, prjóni, skartgripagerð og fleiru.
Gerðuberg stendur fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Í janúar var brugðið út af venjunni vegna þrettándans en annars er fyrsti miðvikudagur mánaðarins reglan. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel tekið í handavinnuna. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og jafnvel sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.
Dagskrá vorsins er eftirfarandi:
3. febrúar - Flugur á sveimi - fluguhnýtingar
3. mars - Bút fyrir bút í þrjátíu ár, Íslenska bútasaumsfélagið 10 ára
7. apríl - Mósaík meistarans
5. maí - Lesið í skóginn tálgað í tré
Sjá nánari upplýsingar um handverkskaffið...