Gerðuberg

 

Á döfinni í Gerðubergi

17.01.2010

Margt spennandi er á döfinni í Gerðubergi í janúar og febrúar sem hægt er að fræðast frekar um á nýju heimasíðunni sem fór í loftið í byrjun desember. Sjá má viðburðadagskrána frá janúar - júní með því að smella hér... en hér að neðan má lesa um það helsta sem er á döfinni í janúar og febrúar!

StrengirStrengir
Laugardaginn 16. janúar verður opnar Messíana Tómasdóttir glæsilega sýningu á leikbrúðum, grímum og búningum frá sýningum Strengjaleikhússins. Má þar nefna sýningarnar Maður lifandi, Bláa stúlkan, Sónata og Undir drekavæng.

Þetta vilja börnin sjá!
Á sama tíma verður opnuð hin árlega sýning Þetta vilja börnin sjá!, þar sem sjá má myndskreytingar úr barnabókum eftir 25 listamenn sem munu keppa um Íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Að verðlaununum standa Eymundsson, Félag Íslenskra bókaútgefenda og Myndstef og verða þau afhent við hátíðlega athöfn við opnun sýningarinnar kl. 14 laugardaginn 16. janúar. Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólabörn um sýningarnar sem hægt er að kynna sér nánar á heimasíðu Gerðubergs.

Við veginn
Þriðja sýningin sem opnuð verður þennan dag er ljósmyndasýning Sigurðar Stefáns Jónssonar, Við veginn, þar sem sjá má ljósmyndir af afskekktum stöðum á Íslandi. Appelsínugulur litur er fangaður í auðninni, einmanaleg neyðarskýli, vitar og fleira sem augað nemur.

Sungið og kveðið
Sunnudaginn 17. janúar hefst ný dagskrá sem á rætur að rekja til Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Það eru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem standa fyrir dagskránni sem ber heitið Sungið og kveðið en hún fer fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði. Boðið verður upp á nýtt þema í hvert sinn en á sunnudaginn verður sungið og kveðið um þorrann, snjóinn og nýárið!

Það kviknaði lífJenný
Sama dag opnar alþýðulistakonan Jenný – Jónína Katrín Jónsdóttir sína fyrstu einkasýningu í Boganum sem hún kallar Það kviknaði líf. Verk eru einlæg, áhrifamikil og á köflum afar litsterk.

Tóney
Guðni Franzson, tónlistarmaður, stendur fyrir líflegri fjölskyldudagskrá með tónlist, dans- og leiklistarívafi einn sunnudag í mánuði þar sem skólabörn og tónlistarnemar halda uppi fjörinu í bland við starfandi listamenn. Sunnudaginn 24. janúar flytja nemendur úr Tónlistarskóla Kópavogs nýtt tónverk, Steinn í Tjarnarlundi, eftir Snorra Sigfús Birgisson við ljóð Steins Steinarrs.

Handverkskaffið
er að venju haldið fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Dagskráin er fjölbreytt; húfuprjón, fluguhnýtingar, bútasaumur, mósaík og tálgun í tré.

Klassík í hádeginu
verður áfram í boði á föstudögum með endurtekningu á sunnudögum sem mælst hefur vel fyrir. Nathalía Druzin og Gissur Páll ríða á vaðið ásamt Nínu Margréti og flytja okkur aríur og rússnesk þjóðlög í skammdegi febrúarmánaðar.

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvendi?
Í febrúar verður barnadagskráin lífleg með Öskudagsgleði þar sem Pollapönkarar leika fyrir dansi og Jón Víðis leikur töfrabrögð. Til undirbúnings fyrir öskudaginn verður boðið upp á námskeið þar sem krakkarnir geta tekið mömmu, pabba, afa eða ömmu með og búið til öskupoka og bolluvendi undir leiðsögn reyndra kvenna í Heimilisiðnaðarfélaginu.

Farfuglinn – Rafmögnuð ópera fyrir ungt fólkFarfuglinn
Unglingarnir verða heldur ekki undanskildir, þar sem þeim verður boðið að sjá Farfuglinn, „rafmagnaða“ óperu eftir Hilmar Þórðarson og Messíönu Tómasdóttur. Óperan fjallar um dauðann. Með þessu verki er reynt að opna augu unga fólksins fyrir möguleikum nútímatónlistar sem spennandi og gefandi sköpunarferlis. Sú grein nútímatónlistar sem hér um ræðir, raftónlistin, krefst einnig skilnings og næmi fyrir nútíma tölvutækni og uppfinningasemi í notkun  hennar. Þennan skilning hefur unga kynslóðin einmitt í ríkum mæli.

Galdur litanna
Kennarar sem koma með nemendur á sýninguna fá sent námsefni í litafræði sem unnið er af Messíönu og þeir sem vilja undirbúa sig sérstaklega vel fyrir kennsluna geta sótt kvöldnámskeið um galdur litanna hjá Messíönu 10. febrúar en það er sérstaklega ætlað fólki í skapandi námi og starfi.

Ástríðulistamenn... og fleira áhugavert!
Margt fleira spennandi er á döfinni þegar mars gengur í garð með hækkandi sól en þar ber hæst sýninguna Ástríðulistamenn – skapandi þörf. Sýningarstjórarnir Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir fara hér óhefðbundnar leiðir í þessari samsýningu ólíkra listamanna, jafnt lærðra sem leikinna, en þar ræður för persónuleg nálgun og einstakt sjónarhorn listamannanna á heiminn.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook