Gerðuberg

 

Kíktu í Gerðuberg um helgina!

15.01.2010

Það verður eitthvað fyrir alla í Gerðubergi um helgina. Laugardagurinn verður sannkallaður fjölskyldudagur. Messíana Tómasdóttir, leikmynda- og búningahönnuður opnar sýninguna Strengi þar sem sjá má grímur, leikbrúður og búninga úr sýningum Strengjaleikhússins.

25 myndskreytar sýna verk sín á sýningunni Þetta vilja börnin sjá! en þeir keppa um Íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Þau verða afhent við opnunina kl. 14 á laugardaginn en mikil spenna ríkir um hver hreppir verðlaunin að þessu sinni! Að verðlaununum standa Eymundsson, Félag íslenskra bókaútgefenda og Myndstef.

Sigurður StefánNý sýning hefur verið sett upp í kaffihúsinu og ber heitið Við veginn. Þar getur að líta ljósmyndir eftir Sigurð Stefán Jónsson af afskekktum stöðum á Íslandi. Appelsínugulur litur er fangaður í auðninni, einmanaleg neyðarskýli, vitar og fleira sem augað nemur.

Á sunnudaginn kl. 14-16 hefst ný dagskrá fyrir söngelskt fólk. Tónlistarmennirnir Bára Grímsdóttir og Chris Foster leiða dagskrána sem ber nafnið Syngjum og kveðum... og fer fram í kaffihúsinu annan sunnudag í hverjum mánuði. Ætlunin er að leiða saman söngelskt fólk af öllum kynslóðum; syngja og kveða saman. Gestir fá söngtexta og dagskráin hefur ákveðið þema í hvert sinn og hefst með söngvum um nýárið, snjóinn og veturinn. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

JennýJenný - Jónína Katrín Jónsdóttir opnar sína fyrstu einkasýningu í Boganum á sunnudaginn kl. 14. Sýningin heitir Það kviknaði líf. Verkin eru einlæg, áhrifamikil og á köflum afar litsterk.

Allir velkomnir á viðburði helgarinnar!!

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook