Gerðuberg

 

Flugur á sveimi, veiðiflugur á handverkskaffi.

02.02.2010

Miðvikudagskvöldið 3. febrúar kl. 20-22 er handverkskaffi í Gerðubergi. Þetta kvöld mun Engilbert Jensen kynna veiðiflugur og fluguhnýtingar.

Veiðiflugum í íslenskri náttúru má skipta í laxaflugur, straumflugur og silungaflugur. Að hnýta flugur er vetrarverkefni marga stangveiðimanna og kvenna, enda eykur það gildi veiðinnar að nota eigin flugur. Fluguhnýtingar eru spennandi handverk, efniviðurinn oft á tíðum litríkur og útkoman heillandi. Engilbert mun sýna tilbúnar flugur en jafnframt hafa efnivið og verkfæri til fluguhnýtinga á staðnum.

Engilbert Jensen þekkja flestir sem liðsmann hljómsveitarinnar Hljóma en færri vita að hann er ástríðufullur áhugamaður um fluguhnýtingar. Engilbert hefur stundað fluguhnýtingar í áratugi og hafa myndir af flugum hans birst í bókum ásamt því að vera varðveittar á safni erlendis.

Gerðuberg stendur fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel unnið handavinnu. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.

Dagskrá fram á vor:
3. mars - Bút fyrir bút í þrjátíu ár, Íslenska bútasaumsfélagið 10 ára.
7. apríl - Mósaík meistarans.
5. maí  - Lesið í skóginn, tálgað í tré.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook