Gerðuberg

 

Galdur litanna - kvöldnámskeið í litafræði

04.02.2010

Kvöldnámskeið í litafræði, miðvikudaginn 10. febrúar kl. 20-22.

Þegar við veljum liti í klæðnað okkar og umhverfi stjórnast valið yfirleitt af því hvað okkur finnst fallegt og þægilegt. En hvaða áhrif og merkingu hafa litir? Því mun Messíana Tómasdóttir leitast við að svara á kvöldnámskeiði í litafræði undir yfirskriftinni: Galdur litanna.

Galdur litanna er stutt námskeið í litafræði fyrir fólk í skapandi starfi eða námi. Námskeiðið hentar vel þeim sem vinna með börnum eða ungmennum, svo sem leikskólakennurum, kennurum svo og listamönnum eða listnemum. Á námskeiðinu útskýrir Messíana litahringinn með áherslu á áhrif lita og táknræna merkingu þeirra. Einnig er farið í gegnum helstu aðferðir við setja saman liti. Messíana leiðir þátttakendur um sýningu sína Strengir sem nú stendur yfir í Gerðubergi og útskýrir listasambönd þar út frá kennsluefni sínu.

Messína Tómasdóttir er einkum þekkt fyrir störf sín tengd leikbrúðu- og tónlistarverkum Strengjaleikshússins. Hún á m.a. að baki nám í leikbrúðugerð í Frakklandi og í myndlist við Myndlista- og handíðaskólann. Messíana hefur hlotið fjölda verðlauna og styrkja fyrir verk sín og ferðast með sýningar Strengjaleikhússins víða um lönd. Auk leiksýninga hefur hún haldið fjölda einkasýninga þar sem hún hefur m.a. sýnt myndlist, plexiskúlptúra, eigin tónverk, klippimyndir auk brúða, gríma og búninga. Hún hefur einnig unnið leikmyndir og búninga fyrir fjölda sýninga í atvinnuleikhúsum, óperum og sjónvarpi.

Námskeiðsgjald: 2.000 kr, innifalið námsgögn og hressing.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.
Umsjón: Messíana Tómasdóttir, búninga- og leikmyndahöfundur.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook