Gerðuberg

 

Farfuglinn - Rafmögnuð ópera fyrir ungt fólk

10.02.2010

FarfuglinnLeikstjórn, leikmynd, búningar og handrit eftir Messíönu Tómasdóttur.

Rafópera: Farfuglinn á vegum Strengjaleikhússins í samstarfi við Tónlist fyrir alla.
Markhópur: Unglingar í 8.-10. bekk grunnskóla.
Sýningar: Gerðuberg 23., 24. og 25. febrúar kl. 9.00 og 10.30 (sýningartími 45 mín).
Aðgangur: 210 kr. á nemenda.
Rútuferðir: Fríar ferðir fyrir hópa innan Reykjavíkur.
Undirbúningur: Kennarar fá sent skemmtilegt námsefni í litafræði til undirbúnings.
Skráning: margret.valdimarsdottir@reykjavik.is

Farfuglinn er rafópera um dauðann og sorgina. Handrit verksins byggir á sögunni um Móðurina eftir H.C.Andersen og Farfuglinum, ljóðabók eftir indverska skáldið Rabindranath Tagore. Sagan fjallar um móður sem missir barn sitt en í óperunni flyst áherslan frá móðurinni yfir á barnið, sem þar er einmitt á unglingsaldri. Unglingar verða sérstaklega illa úti í glímu við tilfinningar sínar vegna fráfalls ættingja og náinna vina. Erfiðara er fyrir unglinga en börn að leita til foreldra sinna með sorg sína, en hinsvegar eru þau ekki enn búin að öðlast þroska hinna fullorðnu til að kljást við svo erfiðar tilfinningar. Farið mildum höndum um þetta viðkvæma viðfangsefni.

Óperan er síbreytileg, hún getur tengst tíðaranda unglinga og haft hljóm sem höfðar til þeirra. Markmiðið með Farfuglinum er að kynna fyrir yngri kynslóðinni
nýsköpun í íslenskri tónlist í formi nútíma óperu og hvernig blanda má þeirri tegund tónlistar saman við raftónlist.

Sjá nánari upplýsingar um óperuna...

Sjáumst í Gerðubergi!

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook