Gerðuberg

 

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvönd?

12.02.2010

Fjölskyldunámskeið í gerð öskupoka og bolluvanda í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands verður í Gerðubergi sunnudaginn 14. febrúar kl. 14 - 16 og í Borgarbókasafni Grófarhúsi kl. 15 - 16.30.

Krökkum á öllum aldri er boðið að taka þátt – takið gjarnan mömmu og pabba eða afa og ömmu með! Allt efni á staðnum og þátttaka er ókeypis!

Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur lifa lengi í minningunni! Að flengja foreldrana og aðra fullorðna að morgni bolludags og segja „bolla, bolla“ og fá jafnmargar bollur að launum síðar um daginn ásamt því að hengja öskupoka aftan á bak einhvers, án þess að viðkomandi verði þess var, eru gamlir og skemmtilegir siðir.

Bolluvendi er auðvelt að útbúa en þeir eru gjarnan gerðir úr löngum prikum og litríkum pappírsræmum. Öskupokar eru litlir skrautlegir pokar sem dregnir eru saman með þræði sem í er hengdur boginn títiprjónn. Markmiðið er að næla öskupokanum aftan á bakið á einhverjum án þess að fórnarlambið taki eftir því.

Á þessu stutta námskeiði eru gerðir öskupokar og bolluvendir eftir kúnstarinnar reglum. Verkefnið er við allra hæfi, auðvelt og skemmtilegt undir leiðsögn sérfróðra.

Öskudagsball – kötturinn sleginn úr tunnunni!

Á Öskudaginn, miðvikudaginn 17. febrúar kl. 14-16 býður Gerðuberg í samstarfi við Frístundamiðstöðina Miðberg til Öskudagsfagnaðar. Pollapönkarar leika fyrir dansi á Öskudagsballi og Jón Víðis töframaður sýnir törfrabrögð. Í lokin verður kötturinn sleginn úr tunnunni á torginu við Gerðberg og Frístundaheimilið Miðberg.

Foreldrar og starfsmenn frístundaheimila eru hvattir til að mæta með börnin.

Allir velkomnir - aðgangur er ókeypis. (Munið að það getur verið kalt út á torgi og gleymið því ekki húfum og vettlingum!)

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook