Öskuball
18.02.2010
Undanfarin ár hefur verið haldið upp á gamlar hefðir í Gerðubergi og öskudagsböllin endurvakin. Húsið hefur fyllst af kátum krökkum, héðan og þaðan úr bænum og skemmt sér konunglega.
Foreldrar er hvattir til að koma með krakkana sína og dansa og syngja með okkur.
Að þessu sinni verður það bandið Pollapönkarar sem stýra dansi og taka þeir lög eins og t.d. Ryksugan á fulli og Prumpulagið. Einnig kemur Jón Víðis til okkar og sýnir sín landsþekktu töfrabrögð en í lokin verður kötturinn sleginn úr tunnunni á torginu við Gerðuberg og Miðberg (allir að vera með góðar úlpur og húfur með sér, það getur orðið kalt að standa út).
Og að sjálfssögðu er ókeypis.
Í samstarfi við frístundamiðstöðina Miðberg
Nánari upplýsingar veitir: Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is;
Sími; 575-7702, 868-1851