Karnival - Tóney
26.02.2010
Karnival blásaranna - Tóney í Gerðubergi
Sunnudaginn 21. febrúar kl. 14.00 verða tónleikar í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi þar sem athyglin verður á blásarahópa en lúðrasveitir og starf þeirra stendur í miklum blóma. Við fáum að heyra svolítið af því efni sem krakkar á Reykjavíkursvæðinu hafa verið að æfa að undanförnu en núna í febrúar fer fram landsmót skólalúðrasveita.
Það mæta hljóðfæraleikarar m.a. af Seltjarnarnesi og úr Grafarvogi og leika létta tónlist. Einhver Samba stemming er í lofti enda Karnival í fullum gangi um heim allan.
Sungin verða lög við alþýðleg kvæði og þjóðvísur með þátttöku nemenda úr Sæmundarskóla í Grafarholti en hann er ásamt Fellaskóla í Breiðholti, Langholtsskóla og nokkrum öðrum, í nánu samstarfi við Tóney um tónmenntir og sviðslistir.
Veturinn 2010 hófst ný tónleikaröð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi; Tóney í Gerðubergi. Hér eru á ferðinni tónleikar ætlaðir tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikra sem lærðra, ungra sem aldna með fjölbreyttri efnisskrá í flutningi upprennandi tónlistarfólks jafnt sem atvinnumanna. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraleik en einnig tengingu við heim leikhússins og dansins.
Tóney í Gerðubergi er góður vettvangur fyrir fjölskylduna að eiga ánægjulega stund saman í skapandi og skemmtilegu umhverfi. Kannski situr eitthvað smálegt eftir í minningu unga fólksins, kannski kveikir eitthvað í unglingnum, kannski fá þeir eldri frjóa hugmynd sem er framkvæmanleg og kannski lifnar í gömlum glæðum þeirra elstu? En fyrst og fremst að eiga saman góða stund.
Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.0
Næsta Tóney í Gerðubergi verðu 21. mars en þá verður m.a. sögð Ástarsaga úr fjöllunum, saga Guðrúnar Helgadóttur, við tónlist Guðna Franzsonar í flutningi Egils Ólafssonar og Caput.
Að tónleikum loknum eru kaffistofan og bókasafnið í Gerðubergi opið fyrir gesti.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða
Guðna Franzsyni; gudni@toney.is og í síma 862-4913