Gerðuberg

 

Klassík í hádeginu

26.02.2010

Klassík í hádeginuVor í París
Klassík í hádeginu í Gerðubergi föstudaginn 26. feb kl. 12:15 og sunnudaginn 28. feb kl. 13:15

Áshildur Haraldsdóttir, flautuleikari og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari flytja sónötur,fantasíur og concertino eftir Hüe, Fantaisie og Poulenc, Messiaen og Chaminade. 
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.

Tónleikaröðin Klassík í hádeginu hefst að nýju á nýju ári. Um er að ræða 6 hádegistónleika á bilinu febrúar 2010 – apríl 2010, hver efnisskrá er flutt tvisvar, á föstudegi og á sunnudegi til þess að gefa sem flestum tækifæri til að njóta tónlistarinnar. Lengd hverra tónleika er á bilinu 30-40 mínútur án hlés. Gert er ráð fyrir að tónleikagestir hafi möguleika á að kaupa sér hádegissnarl fyrir eða eftir tónleikana. Aðgangur er ókeypis og er það von aðstandenda verkefnisins að tónleikarnir verði andlega næring og hvíld frá amstri hversdagsins.

Á efnisskrá verða flutt verkin:

Chaminade (1857-1944): Concertino op. 107,
Hüe (1858-1948):
Fantaisie og Poulenc (1899-1963): Sonata
Allegretto malincolico
Cantilena
Presto giocoso
Messiaen (1908-1992): Le merle noir (Svartþrösturinn)

Klassík í hádeginu er vönduð tónleikaröð sem býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá klassískra tónverka. Hverjum tónleikum er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda með því markmiði að veita áheyrendum innsýn inn í heim klassískrar tónlistar. Allir flytjendur hafa starfað á Íslandi og erlendis um árabil ásamt því að hafa hljóðritað fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Þar má m.a. telja Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara og listrænan stjórnanda tónleikanna

Í boði fyrirhópa
Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og með því. Einnig er hægt að skoða sýningar í húsinu en þær eru að þessu sinni fimm talsins. Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.

Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri í Listadeild; holmfridur.olafsdottir@gerduberg.is
eða í síma 5757702 og Nína Margrét Grímsdóttir, listrænn stjórnandi gsm 899 6413

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook