Krummi
26.02.2010

Krummi krunkar úti. Lærum að syngja og kveða íslensk alþýðulög
Gerðuberg mun í mars og apríl bjóða leikskóla- og skólabörnum á aldrinum 5-7 ára upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma. Til er fjöldinn allur af íslenskum alþýðulögum um krumma, sum þeirra eru mjög vel þekkt en önnur minna.
Dagskráin er í umsjón Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau eru frábært tvíeki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin. Krummi krunkar úti verður í boði fyrir hádegi á mánudögum og miðvikudögum valda daga í mars og apríl.
Sjá nánar
Bára Grímsdóttir ólst upp við söng og kveðskap, heyrði og lærði allt frá barnæsku kveðskap foreldra sinna, afa og ömmu á bænum Grímstungu í Vatnsdal. Bára er af mörgum talin vera einn allra besti túlkandi þjóðlegrar tónlistar hér á landi, en hún hefur sérstakan áhuga á rímnastemmum og kvæðalögum. Hún hefur fengist við flutning á margs konar þjóðlagatónlist bæði hér heima og erlendis. Sem tónskáld og útsetjari, hefur Bára nýtt sér uppsprettulindir íslenskra þjóðlaga til skapandi starfs en hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar sem tónskáld.
Chris Foster kynntist þjóðlögum í uppvexti sínum í Somerset í Suðvestur-Englandi. Flutningur hans einkennist af mikilli og persónulegri innlifun í tónlistina, sem oft leiðir til þess að áheyrendur verða beinir þátttakendur í því sem fram fer og flutt er. Chris hefur sett þjóðlagahefðina í nútímalegan búning með sérstæðum, frumlegum gítarundirleik og sannfærandi söngtúlkun. Hann er talinn einn besti listamaður síðari tíma á sínu sviði og í frestu röð merkra brautryðjenda í endurvakningu á breskri þjóðlagatónlist.