Handverkskaffi miðvikdag 3. mars kl. 20-22
03.03.2010
Bút fyrir bút í þrjátíu ár - Sú list að skera margskonar efni sundur og setja saman aftur, bút fyrir bút, svo úr verði bútasaumsverk, nytjahlutur eða listaverk er handverk sem fagnar vaxandi vinsældum á Íslandi. Á handverkskaffi marsmánaðar kynnir Anna Margrét Árnadóttir Íslenska bútasaumsfélagið sem á þessu ári fagnar 10 ára afmæli sínu.
Anna Margrét mun þetta kvöld kynna viðburði tengda afmælisári Bútasaumsfélagsins. Í haust heldur félagið veglega afmælishátíð í Perlunni undir yfirskriftinni „Bút fyrir bút í 30 ár” sem er yfirlitssýning á íslenskum bútasaumi síðustu 30 ára. Á sýningunni verða einnig innsend verk í samkeppni sem haldin er af þessu tilefni. Hún og samstarfskonur hennar munu hafa meðferðis sýnishorn af því helsta sem einkennir bútasaum, bæði nytjahluti og listaverk, sýna og segja frá og svara fyrirspurnum. Borgarbókasafnið í Gerðubergi kynnir einnig handverksbækur og handverkstímarit, en á bókasöfnum er að finna sjóð fræðslu um flest sem lítur að textílhandverki.
Anna Margrét Árnadóttir er fræðslufulltrúi Íslenska bútasaumsfélagsins og formaður afmælisnefndar þess. Á Íslandi starfar fjöldi stórra og smárra bútasaumsfélaga og klúbba en það starf – hinn félagslegi þáttur; vinátta, samvera, fundahöld, fræðsla og ferðalög er það sem heillar Önnu Margréti við starfsemi félagsins enda er „gaman að sauma saman”.
Gerðuberg stendur fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel unnið handavinnu. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.
Dagskrá vorsins:
7. apríl - Mósaík meistarans.
5. maí - Lesið í skóginn, tálgað í tré.