Tónleikar í Gerðubergi
03.03.2010
Sunnudaginn 7. mars 2010, kl. 16.00 mun Kvennakór við Háskóla Íslands undir stjórn Margrétar Bóasdóttur halda tónleika í Gerðubergi.
Einnig koma fram Benedikt Kristjánsson, tenór og Sólveig Anna Jónsdóttir sér um undirleik.
Aðgangseyrir er kr. 2000.- en kr. 1000.- fyrir skólafólk.
Á efnisskrá tónleikanna er tónlist eftir Robert Schumann en í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu hans. Einnig íslensk kórlög,
einsöngslög og madrigalar.
Kvennakórinn við Háskólann hefur starfað frá því í desember 2005 og var stofnaður með kjarna kórstúlkna sem hafa
margra ára söngreynslu. Kórinn skipa nú 32 stúlkur sem eru flestar nemendur eða starfsfólk háskólans. Kórinn hefur verið
vinsæll hjá söngelskum, erlendum skiptinemum og nú syngja fimm stúlkur frá jafnmörgum löndum með í kórnum.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Bóasdóttir í síma 897-4731