Gerðuberg

 

Langafi prakkari

11.03.2010

Laugardaginn 13. mars kl. 14. verður sýnt leikritið Langafi Prakkari eftir Pétur Eggerz byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.

Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Leikritið var fyrst sýnt árið 1999 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins.

Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða.

Miðaverð er kr. 1.500 og tekið er á móti miðapöntunum í s. 562-2669 og á
moguleikhusid@moguleikhusid.is

Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä
leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir,
leikmynd er eftir leikhópinn og tónlist er gerði Vilhjálmur Guðjónsson.

Langafi prakkari sneri aftur í janúarbyrjun 2007 og hefur enn sem fyrr notið miklilla vinsælda og eru sýningar nú komnar vel á þriðja hundraðið. 

Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana alltaf á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …

Nánari upplýsingar veitir Pétur Eggerz í síma 897-1813 eða hjá Hólmfríði Ólafsdóttur verkefnastjóra, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, sími: 575-7702 eða 868-1851.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook