Gerðuberg

 

Ástríðulist

19.03.2010

ÁstríðulistVerið velkomin á opnun sýningarinnar Ástríðulist, laugardaginn 20. mars kl. 14! Ástríðulist er samsýning fjölmargra lærðra og leikinna listamanna sem eiga það sameiginlegt að nálgast listina af einlægni og ástríðu. Á sýningunni er lögð er áhersla á fjölbreytni, sköpunargleði, frelsi og frumlega sýn á lífið og listina. Mikil litadýrð og gleði einkennir ástríðulist en verkin á sýningunni mætti skilgreina sem alþýðulist (folk art), utangarðslist (outsiders art), bernska list (naive art) og samtímalist (contemporary art).

Í bræðslupotti samtímamenningar ægir saman alls konar myndmáli sem rekja má til listasögunnar og hefðarinnar, en einnig til alþýðulistarinnar; svo sem hannyrða, útskurðar og dægurmenningar; svo sem kvikmynda, myndasagna, graffití eða götulistamanna. Ungir listamenn sem hafa lokið formlegu listnámi sækja óhikað í þennan sjóð og sífellt verður erfiðara að sundurgreina hina fjölmörgu stíla og stefnur.

Við val á verkum á sýninguna hafa sýningarstjórarnir Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir haft að leiðarljósi að verkin endurspegli umfram allt sköpunarþörf, kraft, gleði og persónulega nálgun á viðfangsefninu. Verkin eru fjölbreytt; veggverk, skúlptúrar, textílverk og innsetningar. Þau koma víða að, svo sem úr Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Listasafni Akureyrar, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg og Sólheimum, úr einkaeigu og frá listamönnunum sjálfum sem sumir hverjir vinna ný verk eða innsetningar fyrir sýninguna.

Sjá nánari upplýsingar um sýninguna...

Sjá nánari upplýsingar um listamennina...

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook