Egill Ólafsson og Caput hópurinn á tónleikum í Gerðubergi
17.03.2010
ÁSTARSAGA ÚR FJÖLLUNUM
Sunnudaginn 21. mars kl. 14.00 verða tónleikar í tónleikaröð Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi. Þar kemur Egill Ólafsson fram ásamt Caput hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Guðni Franzson tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast þessari fallegu sögu.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Sagan segir af tröllskessunni Flumbru sem verður svo hræðilega ástfangin af stórum og lötum tröllkarli sem býr langt í burtu. Hún verður að leggja á sig mikið og áhættusamt ferðalag til að njóta ásta með honum, það tekst meðan nóttin er löng. Þeim fæðast átta tröllastrákar, hver öðrum fegurri og elskulegri. Þegar þeir stálpast ákveður Flumbra að taka þá með í heimsókn til karls föður þeirra en ferðin fer á annan veg en ætlað var.
Tónlistin við Ástarsögu úr fjöllunum var samin fyrir nokkrum árum fyrir barnatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands en heyrist nú í nýjum búningi fyrir minni hóp hljóðfæra.
Sjá nánar um Tóney og Caput
Gestgjafi og umsjónarmaður Tóneyjar í Gerðubergi er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is.
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00. Næsta Tóney í Gerðubergi verðu sunnudaginn 18. apríl en þá verður áherslan á fjölbreytta heimstónlist með þátttöku fjölda ungmenna.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða
Guðni Franzson; gudni@toney.is og í síma 862-4913