Gerðuberg

 

Klassík í hádeginu - Tveggja alda tónlist

24.03.2010

Föstudaginn 26. mars kl. 12:15 og sunnudaginn 28. mars kl. 13:15

Flytjendur: Natalia Benedetti, klarínettuleikar og
Sebastiano Brusco, píanóleikari
Efnisskrá: Einleiksverk og dúó eftir Schumann, Schubert, Brusco, Arbonelli-Piazzolla, og Poulenc

Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.

Aðgangur ókeypis

Tónleikaröðin Klassík í hádeginu hefst að nýju á nýju ári. Um er að ræða 6 hádegistónleika á bilinu febrúar 2010 – apríl 2010, hver efnisskrá er flutt tvisvar, á föstudegi og á sunnudegi til þess að gefa sem flestum tækifæri til að njóta tónlistarinnar. Lengd hverra tónleika er á bilinu 30-40 mínútur án hlés. Gert er ráð fyrir að tónleikagestir hafi möguleika á að kaupa sér hádegissnarl fyrir eða eftir tónleikana.

Á efnisskrá verða flutt verkin:

Robert Schumann  
Fantasiestücke op. 73 (1837)
Zart und mit Ausdruck
Lebhaft, leicht
Rasch und mit Feuer
 
Franz Schubert    
Impromptu Op. 90 nr. 3 fyrir píanó

 Sebastiano Brusco   
Drops  fyrir píanó
 
Arbonelli-Piazzolla   
Elaboration on Piazzolla`s themes fyrir klarinett
 
Francis Poulenc   
Sónata fyrir klarinett og píanó (1962)
Allegretto
Romanza
Allegro con fuoco

Um flytjendurna:
 
Á marstónleikum Klassík í hádeginu 26. og 28. Mars nk. eru gestaflytjendur boðnir velkomnir frá Ítalíu. Klarinettuleikarinn Natalia Benedetti og píanóleikarinn Sebastiano Brusco hafa starfað við tónlistarflutning á alþjóðlegum vettvangi um árabil, þau hafa unnið til verðlauna í keppnum og leikið á tónlistarhátíðum og með hljómsveitum. Þar má nefna Stresa, ARAM of Rome, International Competition of Chamber Music, Venice Biennale, Spoleto Festival, Festival of Musical Ibleo Comiso, Elliot Carter’s Festival in Florenz , I Solisti Veneti og Milan Symphonic Orchestra. Efnisskráin spannar einleiks- og samleiksverk tveggja alda, allt frá Schubert til Brusco, þar sem píanóleikarinn flytur eigið einleiksverk, Drops.
 
Sebastiano Brusco er virtur píanóleikari í heimalandi sínu og kemur reglulega fram á tónleikum víða um heim. Hann hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, komið fram sem einleikari með hljómsveitum, t.d.Sinfóníuhljómsveitinni í Mílano og I Solisti Veneti. Sebastiano hefur frumflutt verk eftir Milhaud, Gould, Tossati o.fl. Hann er meðlimur Bernini kvartettsins í Róm og vinnur náið með rússneska fiðluleikaranum Vadim Brodsky.
 
Natalia Benedetti hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir leik sinn í heimalandi sínu en hún lauk námi í klarinettleik með hæstu einkunn árið 2005 frá Tónlistarháskólanum í Perugia. Henni hefur verið boðið að koma fram á tónlistarhátíðum svo sem Feneyjatvíæringnum, Spoleto og Edinborgarhátíðinni. Á Elliot Carter hátíðinni í Feneyjum 2008 lék hún m.a. með Ursulu og Heinz Holliger. Natalia er listrænn stjórnandi tveggja tónlistarhátíða í Bevagna.

Klassík í hádeginu er vönduð tónleikaröð sem býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá klassískra tónverka. Hverjum tónleikum er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda með því markmiði að veita áheyrendum innsýn inn í heim klassískrar tónlistar. Allir flytjendur hafa starfað á Íslandi og erlendis um árabil ásamt því að hafa hljóðritað fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Þar má m.a. telja Nínu Margréti Grímsdóttur, píanóleikara og listrænan stjórnanda tónleikanna

Þjónusta fyrir hópa
Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og gómsæta eftirrétti. Einnig er hægt að skoða sýningar í húsinu en þær eru að þessu sinni fimm talsins. Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700.

Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri í Listadeild; holmfridur.olafsdottir@gerduberg.is eða í síma 575 7702 og Nína Margrét Grímsdóttir, gsm 899 6413.

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook