Landsýn - Sýning í Boganum
24.03.2010
Dagbjört Matthíasdóttir og Magnús Hannibal Traustason
opna sýningu á olíumálverkum í Boganum 25. mars kl. 16:30
Tildrög þess að hjónin Dagga og Maggi hófu að mála var sú að fyrir þremur árum var haldið ættarmót í ættinni hans Magnúsar á Sauðanesvita við Siglufjörð. Þau boð voru látin út ganga að allir ættu að koma með einhvers konar listaverk eftir sjálfan sig, málverk, ljóð, skúlptúr, gjörning eða hvað annað sem fólki dytti í hug. Nú voru góð ráð dýr. Eftir dágóða umhugsun fengu þau hjónin sér vatnsliti og pensla og byrjuðu að koma einhverju á blað. Að eigin sögn gekk það ekki sérlega vel, en á ættarmótið mættu þau með sín eigin „listaverk“. Þegar til kom höfðu þau gaman að verkefninu og í Sauðanesvita var haldin fjölbreytt listsýning þessa helgi.
Haustið eftir fóru þau hjónin norður í land á helgarnámskeið í málun hjá Erni Inga á Akureyri. Þau segja þá helgi hafa verið markaða þjáningu, svita og tárum og að þau hafi að eigin mati árangurslítið reynt að klessa einhverjum litum á striga undir strangri handleiðslu Arnar Inga sem enga miskunn sýndi. Eftir þessa helgi var ekki aftur snúið, málaralistin hafði náð tökum á þeim. Þau festu kaup á litum, penslum, striga og trönum og brettu upp ermar og hafa vart stoppað síðan. Fyrsta veturinn sóttu þau námskeið hjá Ingimari Waage í Kvöldskóla Kópavogs og á síðasta ári byrjuðu þau að starfa í myndlistarklúbbnum Litagleði, fyrst undir handleiðslu Ingimars og síðan Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar.
Málaralistin hefur reynst Magga og Döggu frábært tómstundagaman. Málun er skemmtileg og krefjandi, stundum hafa þau hótað að henda penslum og striga út í hafsauga en alltaf snúa þau aftur. Aldrei er þó tíminn nógur. Vinnan kallar, en Magnús er vélsmiður en Dagbjört bókari. Þau hafa einnig fjölmörg önnur áhugamál. Þar ber hæst göngur um landið þvert og endilangt en þaðan hafa þau líka myndefnið í flestar myndirnar sínar.
Magnús Hannibal Traustason fæddur ´54 á Djúpuvík á Ströndum
Dagbjört Matthíasdóttir fædd ´52 í Kópavogi
Sýningin í Boganum er önnur sýning þeirra hjóna.
Sýningin er sölusýning.
Sýningin stendur til 3. maí 2010 og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16.
Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri á listadeild, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, sími 575 7702 og 868 1851