Gerðuberg

 

Vinir Káins

06.04.2010

Afmælisfundur um kímniskáldið Káinn

Miðvikudaginn 7. apríl kl. 20.30 mun Kvæðamannafélagið Iðunn og Baggalútur standa að afmælisfundi um kímniskáldið Káinn.


Dagskráin


• Steindór Andersen segir frá kímniskáldinu Káinn og fer með nokkrar vel valdar vísur. 
• Félagsmenn Iðunnar flytja fáeinar af vísum Káins og verður gestum boðið að kveða með félagsmönnum.
• Baggalútur syngur lög af plötunni Sólskinið í Dakóta.

Bakkus gamli gaf mér smakka
gæðin bestu, öl og vín.
Honum á ég það að þakka
að þú ert ekki konan mín.

Sjá nánar um Káinn og hljómskífu Baggalúts, Sólskinið í Dakota

Nánari upplýsingar veita
Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is, sími: 575-7702/868-1851
Steindór Andersen, sandersen@simnet.is, sími: 863-7887


 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook