Alive Olivia Clarke
08.04.2010
Alice Olivia Clarke, mósaíkhönnuður, er gestur á handverkskaffi aprílmánaðar í Gerðubergi. Þetta kvöld mun hún opna sýninguna Brautir í kaffihúsinu, segja frá listamannsferli sínum og kynna mósaík fyrir gestum.
Mósaík er mynd eða verk sett saman úr litlum mislitum brotum af flísum. Möguleikarnir í þessari tegund listsköpunar eru nær óþrjótandi en Alice er á meðal færustu listamanna landsins á þessu sviði.
Á handverkskaffinu mun hún segja frá verkum sínum, sýna myndbönd frá vinnslu stærri verka auk þess að vera með sýnishorn af efni og verkfærum á staðnum.
Verk Alice á sýningunni Brautir eru frábrugðin öðrum að því leyti að hér hverfur hún frá þeirra litadýrð sem gjarnan eru einkennandi; hér gefur að líta hvít verk og fáguð.
Sjá nánari upplýsingar um Alice Oliviu Clarke...
Sjá heimasíðu Alice Oliviu Clarke...
Sjá nánari upplýsingar um Handverkskaffið í Gerðubergi...