Langafi prakkari - sýning Möguleikhússins
08.04.2010
Möguleikhúsið sýnir laugardaginn 10. apríl kl. 14. barnaleikritið Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eldjárns.
Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Leikritið var fyrst sýnt árið 1999 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins.
Langafi prakkari sneri aftur í janúarbyrjun 2007 og hefur enn sem fyrr notið mikilla vinsælda og eru sýningar nú komnar vel á þriðja hundrað.
Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä.
Leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, leikmynd er hönnuð af leikhópnum og tónlist eftir Vilhjálm Guðjónsson.
Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …
Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða.
Miðaverð er kr. 1.500 og tekið er á móti miðapöntunum
í s. 562-2669 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is
Nánari upplýsingar veitir Pétur Eggerz í síma 897-1813 og
Hólmfríður Ólafsdóttir verkefnastjóri, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is,
sími: 575-7702.
Pétur Eggerz
Möguleikhúsið ehf
Keilufelli 47
111 Reykjavík
s. 562 2669 / 897 1813
moguleikuhusid@moguleikuhusid.is
www.moguleikhusid.is