Gerðuberg

 

Sungið og kveðið sunnudaginn 11. apríl kl. 14-16

08.04.2010

Syngjum og kveðum um vorið góða grænt og hlýtt, bjóðum sumarið velkomið með sól í hjarta og söng á vörum.

Eigum saman góða stund í kaffihúsi Gerðubergs og kveðum stemmur, syngjum, og hlýðum á söngva og lög, um vorið, sumarið og sólina. Íslensk alþýðulög sungin og kveðin með blandi af erlendum þjóðlögum.

Þeir sem koma fram að þessu sinni eru m.a. Hallgrímur Pétursson, Skarphéðinn Haraldsson, Bára Grímsdóttir, Chris Foster söngvari og gítarleikari frá Englandi, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu og sagnakonan Rósa Þorsteinsdóttir.

Gestir fá sönghefti með íslenskum söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng.

Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar.

Ókeypis aðgangur

Dagskráin Sungið og kveðið hófst í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
í janúar og fer hún fram í kaffihúsinu einn sunnudag í hverjum mánuði. Næst verður sungin og kveðin lög frá ýmsum þjóðlöndum sunnudaginn 9. maí.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook