Eyrbyggjudagskrá í Gerðubergi
12.04.2010

Haukur Sigurðsson, fyrrum sögukennari, flytur eigin dagskrá úr Eyrbyggju miðvikudaginn 14. apríl kl. 20 og laugardaginn 17. apríl kl. 14. Áhersla er lögð á kærleik og kynngi sem sagan segir frá og sem leiða til átaka, baráttu um völd og ein eftirminnilegasta ástarsaga sem finna má í Íslendingasögu kemur við sögu.
Haukur segir frá, beitir leikrænni tjáningu og fer með særingar á lifandi og skemmtilegan hátt til að færa efnið til gesta sýningarinnar. Efni sögunnar er einfaldað og ekki er gert er ráð fyrir að gestir þekki þessa Íslendingasögu sérstaklega til að geta notið sýningarinnar. Flutningurinn tekur rúma klukkustund, miðar eru seldir við innganginn, miðverð er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri (athugið að aðeins er hægt að greiða með peningum, ekki greiðslukortum).
Sögusvið dagskrárinnar er Eyrbyggja og er Snorri goði Þorgrímsson á Helgafelli nokkurs konar tengiliður á milli atburða. Áhersla er lögð á að mynda sagnaheild úr efninu með því að leiða fram þjóðsagnir, galdrafólk og greina frá yfirnáttúrulegum atburðum. Aðdragandi að efninu er landnám Þórólfs Mostrarskeggs innarlega á Snæfellsnesi, harðvítug deila á Þórnesþingi hvar menn eigi að ganga örna sínna og eftirminnileg viðbrögð Þórdísar Súrsdóttur þegar henni er sagt að bróðir hennar Gísli Súrsson hafi verið felldur. Hið eiginlega efni dagskrár hefst þegar þær galdrakonur, Geirríður í Mávahlíð og Katla í Holti, berjast um hylli ungs manns frá Fróðá og beita til þess særingum og göldrum. Katla í Holti beitir sjónhverfingum til að blekkja bróður Geirríðar, Arnkel goða, sem kominn er þangað til að rétta hlut systur sinnar. Þá hefst ástarsaga Björns Ásbrandssonar Breiðvíkingakappa og Þuríðar Barkardóttur, hálfsystur Snorra goða. Björn „fíflaði” Þuríði og er skýrt hvað það þýddi. Greint er frá hinum mörgu tilraunum Þórodds skattkaupanda, manns Þuríðar, og Snorra goða að koma í veg fyrir þessar ferðir Björns frá Kambi í Breiðuvík og yfir heiðina til Þuríðar á Fróðá og að koma Birni fyrir kattarnef. Allt kom fyrir ekki. Að lokum sigldi Björn frá Íslandi og segir ekki af honum fyrr en löngu seinna þegar hann var orðinn höfðingi Indíána í Mið-Ameríku. Íslendingur hraktist undan vondu veðri ásamt skipverjum sínum þangað og kemst að því hver hinn mikli höfðingi er.
Haukur Sigurðsson er sagnfræðingur og var lengst af sögukennari í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann lék í leikritum á skólaárum sínum og var síðar leikstjóri við nemendasýningar í skólum. Hann sótti námskeið í framsögn hjá Ævari Kvaran. Leikrit hans Saga frá Pyreneafjöllum var flutt í Ríkisútvarpinu 2004.
Nánari upplýsingar
Haukur Sigurðsson í síma 588 4727 og gsm 663 8146, haukur.sigurdsson@internet.is