Gerðuberg

 

Klassík í hádeginu - Aríur, ljóð og rússnesk sönglög

29.04.2010

Föstudaginn 30. apríl kl. 12:15 og sunnudaginn 2. maí kl. 13:15 verða fluttar aríur, ljóð og rússnesk sönglög eftir Tchaikovsky, Rachmaninoff, Shostakovich, Glinka, Liszt, Verdi, Massenet, Tosti, Meyerbeer og Lehár

Flytjendur eru Gissur Páll Gissurarson, tenór
Nathalía Druzin Halldórsdóttir, mezzosópran
og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari

Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari.

Aðgangur ókeypis.

Sjá nánari upplýsingar um efnisskrá og flytjendur í viðhengi..

Klassík í hádeginu er vönduð tónleikaröð sem býður gestum upp á fjölbreytta dagskrá klassískra tónverka. Hverjum tónleikum er fylgt úr hlaði með kynningum flytjenda með því markmiði að veita áheyrendum innsýn inn í heim klassískrar tónlistar. Allir flytjendur hafa starfað á Íslandi og erlendis um árabil ásamt því að hafa hljóðritað fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki.

Þetta eru lokatónleikarnir í röðinni Klassík í hádeginu á þessu starfsári, efnisskráin verður flutt tvisvar að venju, á föstudegi og á sunnudegi til þess að gefa sem flestum tækifæri til að njóta tónlistarinnar. Að þessu sinni verða tónleikarnir um 45 mínútur án hlés. Gert er ráð fyrir að tónleikagestir hafi möguleika á að kaupa sér hádegissnarl fyrir eða eftir tónleikana. Tónleikarnir njóta sívaxandi vinsælda enda er aðgangur ókeypis í boði Gerðubergs og er það von aðstandenda verkefnisins að tónleikarnir séu jafnan andlega næring og hvíld frá amstri hversdagsins.

Í kaffihúsinu, sem rekið er af Gallerý fiski, er hægt að fá ljúffengan hádegisverð, kaffi og gómsæta eftirrétti. Einnig er hægt að skoða sýningar í húsinu en þær eru fjóra talsins.
Hópar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrirfram á gerduberg@reykjavik.is  eða í síma 575 7700.

 

Nánari upplýsingar veita Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri í Listadeild, holmfridur.olafsdottir@gerduberg.is  eða í síma 575 7702 og
Nína Margrét Grímsdóttir, listrænn stjórnandi, gsm 899 6413.

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook