Viltu koma og skoða Ástríðulist?
29.04.2010
Sunnudaginn 2. maí kl. 14 verða sýningarstjórarnir Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir og Þórunn Elísabet Sveinsdóttir með leiðsögn um sýninguna Ástríðulist. Sköpunargleði, kraftur, gleði, frelsi og frumleg sýn á lífið og listina einkennir sýninguna sem er samsýning 29 listamanna. Verkin eru fjölbreytt; veggverk, skúlptúrar, textílverk og innsetningar en þau mætti skilgreina sem alþýðulist (folk art), utangarðslist (outsiders art), bernska list (naive art) og samtímalist (contemporary art). Verkin koma víða að, svo sem úr Safnasafninu á Svalbarðsströnd, Listasafni Akureyrar, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg og Sólheimum, úr einkaeigu og frá listamönnunum sjálfum sem sumir hverjir unnu ný verk eða innsetningar fyrir sýninguna.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 9. maí.
Ástríðulistamenn:
Bragi Sigurgeirsson • Björn Guðmundsson • Eggert Magnússon • Einar Baldursson • Elín S.M. Ólafsdóttir • Friðrik Hansen • Frosti Friðriksson • Gunnar Einarsson • Hafþór Ragnar Þórhallsson • Halldóra Kristinsdóttir • Helga Dómhildur Alfreðsdóttir • Helgi Björnsson • Hildur Kristín Jakobsdóttir • Hugleikur Dagsson • Ilmur Stefánsdóttir • Ísak Óli Sævarsson • Kata saumakona • Norðanbál • Ragnar Hermannsson • Sara Björnsdóttir • Sigrún Gísladóttir • Sigurður Sveinsson • Sigurlaug Jónasdóttir • Svava Skúladóttir • Þorsteinn Díomedesson