Gerðuberg

 

Lesið í skóginn - tálgað í tré

03.05.2010

Miðvikudagskvöldið 5. maí kl. 20-22 er handverkskaffi í Gerðubergi. Þetta kvöld kynnir Ólafur Oddsson ferskar viðarnytjar og tálgutækni. Tálgun í ferskan við er frábrugðin annarri tálgun að því leyti að viðurinn er mjúkur og ilmandi. Efniviðinn, svo sem afklippur af trjám og runnum, er auðvelt að nálgast nú þegar tráklippingar standa yfir. Auk tálgutækninnar sýnir Ólafur þau áhöld sem notuð eru. Einnig verða til sýnis nytjagripir og skrautmunir sem unnir eru úr ferskum við.

Ólafur Oddson starfar sem fræðslufulltrúi hjá Skógrækt ríkisins og sem verkefnisstjóri grenndarskóga skólanna fyrir Menntasvið Reykjavíkurborgar. Ólafur hefur um árabil kennt tálgun og ferskar viðarnytjar í Kennaraháskóla Íslands og á námskeiðum fyrir almenning víða um land við góðan orðstýr.

Gerðuberg stendur fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel unnið handavinnu. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Hlé verður á handverkskaffinu yfir sumarmánuðina en það hefst að nyju í september. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook