Allir hafa hæfileika
06.05.2010
Fimmtudaginn 6. maí kl. 14 opnar sýningin Allir hafa hæfileika. Sýningin er samsýning 24 listamanna sem tilheyra listahópi Iðjubergs.
Verkin á sýningunni eru fjölbreytt; málverk, teikningar, vefnaður, þæfing og mósaík. Þau eru unnin af fötluðum einstaklingum sem sækja Iðjuberg, dagþjónustu á vegum Svæðisskristofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Verkin á sýningunni verða ýmist til í listiðjunni eða hæfingu.
Sýningin Allir hafa hæfileika er í samstarfi við List án landamæra og stendur hún til 30. júní. Sýningin er opin virka daga kl. 11 – 17 og kl .13 – 16 um helgar. Athugið að lokað er um helgar í júní.
Þátttakendur í sýningunni:
Anna Borg Waltersdóttir, Anna Einarsdóttir, Anna Þorgeirsdóttir, Arnar Jósteinsson, Áslaug Gunnlaugsdóttir, Davíð Kristjánsson, Eiður Sigurðsson, Erla Magnúsdóttir, Eyrún Erla Runólfsdóttir, Haraldur Bryjar Sigurðsson, Hrefna Daníelsdóttir, Höskuldur Imsland, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Jón Líndal, Kristinn Már Ólafsson, Linda Rós Lúðvíksdóttir, Magnús Guðmundsson, Rakel Ósk Ævarsdóttir, Sigurður Þór Elíasson, Stefán Jónsson, Víðir Már Sveinsson, Þóra Guðbjörg Björnsdóttir, Þórey Rut Jóhannesdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson.
Umsjónarmaður listiðjunnar og listahóps Iðjubergs:
Sigurlaug Helga Jónsdóttir
Umsjónarmaður hæfingar:
Margrét Finnbogadóttir